Mottumars hlaupið 19. mars 2026
Mottumarshlaupið fór fram í fyrsta sinn árið 2024 og síðan þá hefur hlaupinu vaxið fiskur um hrygg enda hlaupaleiðin einstök, hröð og aðgengileg fyrir alla. Þátttaka fór fram úr björtustu vonum í fyrra, en hlaupið FRÍ vottað sem gefur því tiltekinn gæðastimpil og er stefnan tekinn á enn meiri fjölda í ár.
Hlaupið verður haldið fimmtudaginn 19. mars kl. 18:00 frá Fagralundi í Kópavogi en hlaupaleiðin liggur um Fossvogsdalinn. Dagskráin hefst kl. 17:30 með léttri upphitun og stemmingu en hlaupið verður ræst kl. 18:00. Hlaupaleiðin er 5 km braut, löglega mæld og vottuð af Frjálsíþróttasambandi Íslands. Þrátt fyrir löglega keppnisbraut þarf enginn að vera ragur við að mæta því allir eru velkomnir og það má ganga og skokka, allt eftir því sem hentar hverjum og einum. Markmiðið okkar er eitt, að hreyfa okkur í góðum félagskap og samveru og sýna verkefninu stuðning.
Dagskrá á hlaupdag
- 17:00 Afhending gagna í Fagralundi hefst
- 17:30 Upphitun hefst
- 18:00 Mottumarshlaupið ræst!
- 19:10 Tímatöku lýkur
Skráning og hlaupagögn
Skráningargjald er 5.000 krónur fyrir 12 ára og eldri (Mottumarssokkar fylgja með) og 1.500 krónur fyrir börn 11 ára og yngri (Mottumarsbuff fylgir með).
Hlaupagögn verða afhent frá 2. mars hjá Krabbameinsfélaginu, Skógarhlíð 8, mánudaga – fimmtudaga á milli kl. 09:00 – 16:00 og á föstudögum á milli 09:00 – 14:00. Einnig til kl. 16:00 á hlaupdegi.
- Inni á heimasíðu hlaupsins má finna ýmsar ganglegar og hvetjandi upplýsingar, meðal annars má finna æfingaáætlanir sem nota má til að undirbúa sig fyrir Mottumars hlaupið en einnig til að æfa eftir fyrir önnur hlaup, því nóg verður af þeim á komandi mánuðum.
- Skráning í hlaupið er hafin og má finna skráningarsíðuna hér:
