Fara í efni

Inglin, ný lína íslenskra fæðubótarefna

Ingling er íslenskt framleiðslufyrirtæki sem framleiðir hágæða fæðubótarefni. Árið 2025 komu tvær nýjar vörur frá Ingling á markaðinn, þ.e. Kraftur Test Booster og Gyðja Lífskraftur.
Kraftur og Gyðja
Kraftur og Gyðja

Ingling er íslenskt framleiðslufyrirtæki sem framleiðir hágæða fæðubótarefni. Árið 2025 komu tvær nýjar vörur frá Ingling á markaðinn, þ.e. Kraftur Test Booster og Gyðja Lífskraftur.

„Kraftur er einstök blanda af jurtum og sveppum þar sem vísindin hafa sýnt áhrif á aukið testósterón, styrk, einbeitingu og frjósemi karla. Aðrar jákvæðar verkanir Krafts eru minni streita, betri svefn og aukinn vöðvamassi við æfingar.“

„Gyðja er svo aftur á móti hönnuð fyrir konur og styður hún við hormónajafnvægi, húð, hár og neglur. Hún inniheldur meðal annars íslenskt astaxanthin, Íslensk vilt bláber og krækiber, KSM-ashwagandha, shilajit, ýmis vítamín, steinefni, sveppi og jurtir sem saman hafa góð áhrif á meðal annars meltingu, skjaldkirtil og almenna vellíðan.

Á heimasíðu www.Ingling.is er auðvelt að nálgast upplýsingar um nákvæm innihaldsefni og sértæk áhrif þeirra á líkamsstarfsemina. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á tölvupóstnetfangið ingling@ingling.is eða heyra í okkur í síma 497-0078. Það má segja að kosturinn við að neyta íslenskra fæðubótarefna sé að auðvelt er að nálgast upplýsingar um framleiðsluna og fá persónulega þjónustu við val á fæðubótarefnum fyrir hvern og einn.