GoRed fyrir konur
GoRed 2026 er runninn upp, 17.árið sem við fögnum deginum með fjölmörgum svo sem World Class sem býður frítt í stöðvar í tilefni dagsins.
Go red 2026
GoRed 2026 er runninn upp, 17. árið sem þessum mikilvæga degi er fagnað. Einnig hefur litið dagsins ljós glæný heimasíða GoRed.
Á síðunni má finna upplýsingar um GoRed, áhugaverða tengla og fróðleik og að sjálfsögðu er á forsíðunni hnappur sem leiðir okkur inn á blað ársins.
Vefsíðan er lifandi og tekur stöðugum breytingum eftir því sem nýtt efni bætist við.
Sú staðreynd að hjartasjúkdómar séu ein helsta dánarorsök kvenna og að það sé ekki talað meira um það vekur upp áleitnar spurningar. Hvers vegna er það að fólk telur heilsu þessa grunnlíffæris og æðanna sem næra líkamann ekki mikilvægara umræðuefni daglega en raun ber vitni ? Hvers vegna eru konur með óútskýrð einkenni bara þreyttar og óupplagðar, streittar og vansvefta, gæti raunveruleg ástæða legið í lífsdælunni sjálfri ?
Hægt er að lesa allt um þetta og meira til inni á
https://gored.is/
