Alþjóðlegur dagur krabbameina
Í dag, 4. febrúar, er alþjóðlegur dagur krabbameina. Krabbameinstilfellum fer fjölgandi um allan heim og er Ísland þar ekki undanskilið. Árlega greinast hér um 2.000 manns með krabbamein en gangi spár eftir má búast við því að árið 2045 verði greiningarnar orðnar ríflega 3.500 á ári.
Góð næringarefni er að finna í ávöxtum og grænmeti
Í dag, 4. febrúar, er alþjóðlegur dagur krabbameina. Krabbameinstilfellum fer fjölgandi um allan heim og er Ísland þar ekki undanskilið. Árlega greinast hér um 2.000 manns með krabbamein en gangi spár eftir má búast við því að árið 2045 verði greiningarnar orðnar ríflega 3.500 á ári.
Á Landspítala hefur ýmislegt verið gert til að bregðast við þessari fjölgun, líkt og stofnun Heimaspítala krabbameinsþjónustunnar þar sem markmiðið er að stytta legu á spítalanum og jafnvel koma í veg fyrir innlögn. Unnið er að því að stofna Krabbameinsmiðstöð Landspítala en markmið hennar er að samhæfa krabbameinsþjónustu þvert á spítalann, sem og við samstarfsaðila utan spítalans sem koma að þjónustu og krabbameinsrannsóknum. Að auki stendur til að efla persónusniðnar krabbameinsforvarnir á Landspítala, sem bæði draga úr líkum á að fólk fái krabbamein og að þeir sem áður hafa fengið meinið veikist aftur.
Krabbamein snertir aldrei aðeins þann sem greinist, heldur hóp ættingja, vina og fjölda annarra sem í kringum einstaklinginn standa. Greiningin er jafnan mikið áfall, óháð því að meðferðir hafi tekið miklum framförum og lífslíkur séu betri en áður. Það er skýrt markmið Landspítala að mæta þessu fólki af fagmennsku, umhyggju og virðingu og veita því sem allra besta og heildstæða þjónustu á öllum stigum veikindanna.
