Fara í efni

38. Neshlaupið, viðburður fyrir alla fjölskylduna

Neshlaupið 2026 verður haldið í 38. sinn laugardaginn 9. maí. Hlaupið verður ræst kl 11:00 við Sundlaug Seltjarnarness en hlaupið er sem leið liggur kringum nesið og endað við sundlaugina þar sem vel verður tekið á móti hlaupurnum og verðlaun veitt.
Frá ræsingu Neshlaupsins 2025
Frá ræsingu Neshlaupsins 2025

Neshlaupið 2026 verður haldið laugardaginn 9. maí kl. 11:00 við Sundlaug Seltjarnarness. Trimmklúbbur Seltjarnarness (TKS), heldur þennan árlega viðburð nú í 38. skipti og má því með sanni segja að hlaupið hafi fest sig vel í sessi í hlaupa flórunni.

Vegalengdir

Í boði eru þrjár vegalengdir:

3,25 km skemmtiskokk, án flokkaskiptingar en með tímatöku (flögur).

7,5 km hlaupaleið, einn Neshringur með tímatöku (flögur).

15 km hlaupaleið, tveir Neshringir með tímatöku (flögur) millitími gefinn.

Skráning og afhending hlaupagagna

Skráning fer fram á netskraning.is en forskráningu lýkur á miðnætti 7. maí en þá hækkar skráningargjaldið og því eru þátttakendur hvattir til að forskrá sig tímanlega. Einnig er unnt að skrá sig á staðnum en skráningu líkur kl. 10 á hlaupdegi. Afhending á hlaupagögnum fer fram í íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi á milli kl. 17-19:00 föstudaginn 8. maí og á hlaupadag milli kl. 9 - 10:45.

Þátttökugjald

2.900 kr. fyrir fullorðna (16 ára og eldri f. 2010 og fyrr) en hækkar í 3.600 kr. eftir miðnætti 7. maí. Börn og ungmenni (15 ára og yngri f. 2011 eða síðar, miðað er við grunnskólaaldur) fá frítt í hlaupið.

Hlaupaleið

Rásmark og endamark er við Sundlaug Seltjarnarness í öllum vegalengdum. Í lengri vegalengdunum er hlaupið eftir göngu/hjólastígnum hringinn um nesið. Frá Suðurströnd eftir Bakkagranda, út fyrir golfvöll í Suðurnesi, með Kotagranda að Snoppu, síðan Norðurströnd heim að endamarki við sundlaug. Í 3,25 km hlaupinu er hlaupið eftir Suðurströnd og beygt inn Lindarbraut og Norðurstönd til baka þar til beygt er í átt að sundlaug að nýju.

Hér má sjá kort af leiðinni

Neshlaup TKS - https://www.google.com/maps/d/viewer?mid=1ManLhaMiPQdvHVhexsrxszOW8EY&usp=sharing