Blómstraðu, með bættri kvenheilsu – Líf styrktarfélag kynnir
Líf styrktarfélag stendur fyrir málþingi um víðtæka þætti er snúa að kvenheilsu þriðjudaginn 3. mars kl. 17-20, í sal Deloitte á 5. hæð, á Dalvegi 30 í Kópavogi. Fyrirlesarar eru þær Ebba Guðný Guðmundsdóttir, Þorgerður Sigurðardóttir, Helga Guðný, Kristín Þóra Haraldsdóttir og Berglind Guðmundsdóttir.
Vera Víðisdóttir framkvæmdastjóri Lífs opnar málþingið en nánari dagskrá er sem hér segir.
Kl: 17 - Málþing hefst
Kl: 17: 05 - Ávarp - Framkvæmdastjóri Lífs, Vera Víðisdóttir
Kl: 17:15 - Ebba Guðný Guðmundsdóttir (Pure Ebba) - Hvað er góð heilsa?
Kl: 17:30 - Þorgerður Sigurðardóttir, sjúkraþjálfari - Grindarbotninn og lífsgæðin mín
Kl: 17:45 - Helga Guðný, Núna Co. Wellness Studio - Mikilvægi hreyfingar
Kl: 18:00 – Hlé og léttar veitingar
Kl: 18:15 - Kristín Þóra Haraldsdóttir, leikkona - Persónuleg reynsla af kulnun
Kl: 18:30 - Berglind Guðmundsdóttir hjá Lífsgleðinni - Hvíld sem uppspretta lífsgleði
Kl: 18:45 Málþingsslit og spjall í sal
Málþingið er opið öllum og miðasala fer fram á www.lifsspor.is
Um styrktarviðburð er að ræða og er upphæð miðaverðs valkvæð eða frá 2.900 kr, en innkoma af miðasölu rennur óskipt til Lífs styrktarfélags. Fyrirlesarar og allir sem koma að viðburðinum gefa vinnu sína.
