Vecct Mílan, spennandi nýjung í íslenska hlaupaheimnum
Vecct Mílan í samstarfi við Hringdu og Frjálsíþróttasamband Íslands fer fram á Kvartmílubrautinni í Hafnarfirði þriðjudaginn 28. apríl. Opni flokkurinn er ræstur kl. 19:00, elítuflokkur kvenna kl. 19:30 og elítuflokkur karla kl. 19:45
Um viðburðinn:
Þetta er í fyrsta sinn sem álíka viðburður er haldinn á Íslandi en auk þess að vera frábær hlaupakeppni og viðburður verður hlaupið Íslandsmótið í Götumílu. Frjálsíþróttasamband Íslands kemur að skipulagningu á viðburðinum sem og vottun á hlaupinu og dómgæslu.
Keppnisflokkar:
Þó svo að hlaupið sé Íslandsmót og að margir af bestu hlaupurum landsins séu skráðir til leiks, í svokallaðan elítuflokk, þá geta aðrir einnig spreytt sig á brautinni sem er 1 míla, eða 1609 m. Sá flokkur heitir opinn flokkur og er um að gera að skrá sig í hann ef að tímar sem settir hafa verið inn sem lágmark í „elítuflokkinn“ hafa ekki náðst ennþá.
Lágmörkin:
| 800 | 1500 | 3000 | 5000 | 10000 | Hálfmaraþon | |
| Karlar | 2:04 | 4:17 | 9:15 | 15:50 | 33:40 | 1:14.40 |
| Konur | 2:26 | 5:05 | 11:05 | 19:10 | 40:00 | 1:30 |
Um brautina sem er á svæði Kvartmílublúbbs Hafnarfjarðar.
Um er að ræða hraða og marflata malbikaða braut, sem sagt 0 hækkun, sem skipulögð var í samráði við fagfólk innan hlaupaíþróttarinnar. Brautin og undirlag fylgir hún öllum tilsettum skilyrðum World Athletics og Frjálsíþróttasambands Ísland um götumílu og er skýrt afmörkuð. Hringurinn er 1119 metra langur, þar sem 490 metra beinn kafli er hlaupinn tvisvar.
Þeir sem standa að viðburðinum:
Flestir þekkja Hringdu https://www.hringdu.is/ sem sérhæfir sig í þjónustu er snýr að símaþjónustu og fjarskiptum ýmisskonar.
Vecct er hins vegar, nýtt af nálinni og sérhæfir sig í hönnun og sölu á hlaupafatnaði https://vecct.store/is-is
Nánari upplýsingar og skráning
Til að nálgast frekari upplýsingar og ekki síst hvatningu við að taka þátt í þessum flotta viðburði er tilvalið að heimsækja nýstárlega heimasíðu hlaupsins. https://vecct.store/en-is/pages/vecct-milan
Þar er hægt að skoða og máta sig inn í lágmörkin sem sett eru fyrir elituflokkinn, skrá sig í opinn eða elítuflokk, fá nánari upplýsingar um viðburðinn og staðsetninguna og skoða lista yfir þá sem nú þegar hafa skráð sig.
Heilsutorg hvetur áhugasama um að kynna sér viðburðinn og að taka skrefið og skrá sig til leiks, því keppni er gjarnan besta æfingin og áskoranir eru til að taka þeim.
Fríða Rún Þórðardóttir
