Fara í efni

Fossvogshlaup 2015

Fossvogshlaup Víkings var kosið fjórða vinsælasta götuhlaupið í kosningu hlaup.is árið 2014. Hlaupið verður haldið fimmtudaginn 27. ágúst kl 19:00 og verður ræst í Víkinni, Traðarlandi 1 í Fossvogi. Allir hlauparar sem náð hafa 12 ára aldri eru velkomnir, jafnt byrjendur sem lengra komnir. Í fyrra seldist upp í hlaupið en nú hafa framkvæmdaaðilar tryggt að aukinn fjöldi hlaupanúmera sé í boði svo allir sem vilja ættu að komast að.
Fossvogshlaup 2015

Fossvogshlaup Víkings var kosið fjórða vinsælasta götuhlaupið í kosningu hlaup.is árið 2014. 

Hlaupið verður haldið fimmtudaginn 27. ágúst kl 19:00 og verður ræst í Víkinni, Traðarlandi 1 í Fossvogi.

Allir hlauparar sem náð hafa 12 ára aldri eru velkomnir, jafnt byrjendur sem lengra komnir. Í fyrra seldist upp í hlaupið en nú hafa framkvæmdaaðilar tryggt að aukinn fjöldi hlaupanúmera sé í boði svo allir sem vilja ættu að komast að. 

Vegalengdir
5 og 10 km með tímatöku. Vegalengdir eru mældar og viðurkenndar af FRÍ.

Staðsetning
Víkin, Traðarlandi 1 í Fossvogi. Hlaupaleiðin er hringur í Fossvogsdalnum.

Drykkjarstöð er á miðri leið fyrir þá sem hlaupa 10 km.

Þátttökugjald og skráning
Skráning fer fram á heimasíðu Almenningsíþróttadeildar Víkings: http://vikingur.is/almennings/skradir

Opnað verður fyrir skráningu 13. ágúst 2015. Forskráning er til miðnættis 26. ágúst. Skráning á keppnisdegi er í Víkinni frá kl. 16.00-18.00.

Verð í forskráningu:

  • 1.750,- fyrir 18 ára og eldri (f.1997 og fyrr)
  • 1.250,- fyrir 12-18 ára (f. 1998-2003)

Verð á keppnisdegi:

  • 2.500,- fyrir 18 ára og eldri
  • 2.000,- fyrir 12-18 ára.

Hlaupagögn verða afhent  gegn framvísun greiðslukvittunar miðvikudaginn 26. ágúst kl. 18:30 - 20:30 og svo á hlaupadeginum sjálfum, fimmtudeginum 27. ágúst frá kl. 16:00 í Víkingsheimilinu, Traðarlandi 1, 108 Reykjavík.

Verðlaun
Verðlaun verða veitt fyrir þrjú fyrstu sætin í karla - og kvennaflokki í báðum vegalengdum (ekki verða veitt verðlaun í aldursflokkum). 

Verðlaunaafhending fer fram í Víkinni að hlaupi loknu. Fjöldi glæsilegra útdráttarverðlauna.