Lífssporið 19. maí
Líf styrktarfélag stendur fyrir góðgerðahlaupinu, Lífssporinu, þriðjudaginn 19. maí kl: 18. Hlaupið hefst í Nauthólsvíkinni, nánar tiltekið hjá Bragganum. Boðið verður upp á 5 km og 10 km hlaup með flögutímatöku sem eru vottaðar af Frjálsíþróttasambandi Íslands. Einnig verður 3 km ganga/skemmtiskokk án tímatöku.
Um hlaupaleiðina:
Hlaupaleiðin liggur frá Nauthólsvíkinni og um Fossvogsdalinn en 5 km hlauparar snúa þar og halupa til baka sömu leið, en 10 km snúa úti í Elliðárdal, skammt frá Kanínubrekkunni svokölluðu.
Samstarfsaðilar
Hlaupið er haldið í góðu samstarfi við aðalstyrktaraðila hlaupsins, Útilíf og Sjóvá en Sjóvá styrkir LÍF um 1.000 kr. fyrir hvern þátttakanda í Lífssporinu. Hver einasta skráning skiptir því miklu máli
Allir sem skrá sig fyrir 15. maí komast í pott og eiga möguleika á að vinna glæsilegt Garmin Forerunner® 165 Music hlaupaúr.
Afhending gagna
Afhending gagna verður í verslun Útilífs í Skeifunni mánudaginn 18. maí frá kl. 11:00 til 18:00. Afhending gagna fer einnig fram á sjálfan hlaupadaginn þriðjudaginn 19. maí kl. 16:00 - 17:00 í Bragganum Nauthólsvík. Þeir sem kjósa að skrá sig á staðnum geta gert það í Bragganum frá kl. 15:30-16:15 á hlaupdegi.
Verðlaun
Glæsileg verðlaun í boði Útilífs verða veitt fyrir 1. 2. og 3. sæti karla og kvenna í 5 km og 10 km hlaupi og Sjóvá veitir tveim heppnum þátttakendum glæsileg hlaupaúr. Auk þess sem fjöldi glæsilegra útdráttarverðlauna verður veitt þátttakendum úr öllum flokkum.
Nánari upplýsingar um hlaupið má finna inn á www.netskraning.is/lifssporid en þar fer fram skráning í allar vegalengdir.
Í ár rennur allur ágóði af hlaupinu í söfnun fyrir nýju leghálsspeglunartæki sem er mikilvægur liður í að finna alvarlegar breytingar og þannig lækka nýgengi og dánartíðni á leghálskrabbameini.
