Fara í efni

1. Maí hlaup Ármanns

1. maí hlaup Ármanns verður haldið föstudaginn 1. maí í Laugardalnum. Spennandi viðburður fyrir börn og fullorðna. Hvað er betra en að byrja daginn á skemmtilegu hlaupi í góðum félagsskap.
Það verður líf og fjör í Laugardalnum á 1. maí
Það verður líf og fjör í Laugardalnum á 1. maí

1. maí hlaup Ármanns verður haldið föstudaginn 1. maí í Laugardalnum. Þetta er í fyrsta sinn sem þessi viðburður er haldinn en hlaupið er bæði fyrir börn og fullorðna. 

Hlaupið hefst og endar við Ármannsheimlið/Laugaból, nánar tiltekið við norð-austurhorn þess. Allir eru velkomnir í hlaupið sem haldið er í fyrsta sinn. Keppt er í flokkum stúlkna og drengja, karla og kvenna og má sjá aldursflokka og rástíma hér fyrir neðan.

Keppnisflokkar og tímasetningar:

  • 12 ára og yngri stelpur kl. 11:00
  • 12 ára og yngri strákar kl. 11:00
  • 13-17 ára stelpur kl. 11:20
  • 13-17 ára strákar kl. 11:20
  • 18 ára og eldri konur kl. 11:40
  • 18 ára og eldri karlar kl. 11:40

Verðlaun:

Veittur verður eignar bikar fyrir fyrsta sæti í hverjum keppnisflokki og verðlaunapeningar fyrir 2. og 3. sæti í hverjum keppnisflokki. Verðlaunaafhending fer fram í Ármannsheimilinu (Laugabóli) kl. 12:00.

Skráning fer fram hér:

https://www.abler.io/shop/armann/frjalsar?program=Q2x1YlNlcnZpY2U6NTUxODA%3D&fbclid=IwY2xjawRWIrxleHRuA2FlbQIxMABicmlkETAzdGhNRGNMVUhlcjRWeDN4c3J0YwZhcHBfaWQQMjIyMDM5MTc4ODIwMDg5MgABHgSn_BcI26DuY99YqXrH7-IIALbOLwrUDu081L0zbnL1KdupQy4d_LqV95oj_aem_HPYkyl9eTYug8MELWgL4IA

Hlaupstjóri er Ármanns þjálfarinn Björn Margeirsson en ef nánari upplýsinga er óskað má senda póst á bjornmargeirsson@gmail.com.

Hvað er betra en að byrja daginn á skemmtilegu hlaupi í góðum félagsskap.