Fara í efni

Á Fram Atwork - Skagastrandarhlaupið 19. júlí 2026

Nýtt hlaup hefur göngu sína 2026 en það er Á Fram Atwork Skagastrandarhlaupið.
Skagaströnd
Skagaströnd

Nýtt hlaup hefur göngu sína í júlí 2026 en það er Á Fram Atwork Skagastrandarhlaupið.

Um hlaupið

Nýtt hlaup hefur göngu sína í júlí 2026 en það er „Á Fram Atwork Skagastrandarhlaupið“ en nafnið sækir viðburðurinn til Ungmennafélagsins á Skagaströnd og Atwork á Skagaströnd sem eru aðal forsprakkar og framkvæmda aðilar hlaupsins ásamt Skagastrandarbæ.

 

Vegalengdir

Boðið verður upp á 5 km og 10 km götuhlaup, 1 km skemmtiskokk og 13,5 km utanvegahlaupið ATWORK MEGA TRAIL. Hlaupið og vegalengdir eru FRÍ vottað, fyrir utan skemmtiskokkið. Kort af hlaupaleiðum má finna á skráningarsíðu hlaupsins frá miðjum maí.

 

Verðlaun

Peningaverðlaun í boði fyrir fyrstu þrjá í 5 km, 10 km og ATWORK MEGA TRAIL 13,5 km utanvegahlaupinu. Verðlaun verða veit fyrir fyrstu þrjú sætin í hverri vegalengd og viðurkenningar í öllum flokkum.

 

Innifalið í skráningargjaldi:

  • Drykkur í marki
  • Kökuhlaðborð í íþróttahúsinu
  • Peningaverðlaun til sigurvegara
  • Verðlaun fyrir fyrstu þrjú sæti, karla og kvenna í hverri vegalengd og viðurkenningar í öllum flokkum
  • Brautar- og öryggisgæsla
  • Frítt í sund í sundlauginni á Skagaströnd
  • Aðgangur að hjúkrunarfólki
  • Salernisaðstaða og sturtuaðstaða
  • Flutningur til byggða fyrir þau sem ekki ná tímamörkum í Atwork Mega Trail Run sem er 2,5 klst
  • Tímataka og vottaður árangur

Eftir hlaup verður boðið upp á veglegar veitingar í íþróttahúsinu og allir þátttakendur fá frítt í sund og gufu að loknu hlaupi. Einnig verður Spákonuhof og veitngarhús staðarins opin. Hægt að panta taldstæði og þar er frisbí gólfvöllur staðsettur eða hótelgistingu ásamt því að skella sér í strandblak.

Skráning

Skráning fer fram á netskraning.is, hægt er að skrá sig þar til kl. 21:00, 18. júlí. Afhending keppnisnúmera fer fram í íþróttahúsinu frá kl. 12, 19. júlí. Ekkert aldurstakmark er í götuhlaupin en aldurstakmark er 18 ára (f. 2008) í utanvegahlaupið.

www.netskraning.is 

Nánari upplýsingar: frida@heilsutorg.is eða Fríða Rún Þórðardóttir, sími 898 8798

Facebook: aframatwork_skagastrandahlaupið

Instagram: aframatwork_skagastrandahlaupið