Fara í efni

Hafra-bananasjeik - frábær á morgnana

Dúndur morgundrykkur.
Hafra-bananasjeik - frábær á morgnana

Dúndur morgundrykkur. 

Þessi er afar saðsamur og fullur af hollustu. Þú þarft ekkert nart fram að hádegismat ef þú skellir í einn svona á morgnana. 

Hráefni: 

1 stór banani

240 ml haframjólk (eða rísmjólk ef einhverjir þola ekki hafra)

2 msk tröllahafrar lagðir í bleyti yfir nótt

½ tsk vanilluduft

1-2 msk hörfræolía

kanill framan á hnífsodd

lófafylli af klökum

Leiðbeiningar: 

Allt er sett í blandara og blandað þar til nánast kekkjalaust.

Njótið vel!