Fara í efni

Eggjakaka með grænmeti og ost

Eggjakaka með grænmeti og ost

Þessi dásamlega eggjakaka passar við öll tækifæri.
Frábært að skella í þessa fyrir gott "brunch" boð eða jafnvel í morgunmat

 

 

 

 

 

2 msk olía
1 msk smjör
250 g sveppir, skornir í sneiðar eða fjórðunga
200 g hvítkál, skorið í ræmur
2 hvítlauksgeirar
1 msk ferskt timjan eða ½ tsk þurrkað
Nýmalaður pipar
Salt
200 g kirsiberjatómatar
6 egg
100 ml matreiðslurjómi eða mjólk
Lófafylli af íslensku klettasalati, grófsöxuðu



1 ostarúlla með hvítlauk og steinselju frá Ostahúsinu, skorin í bita
Grillið í ofninum hitað.
Olía og smjör hitað á stórri, þykkbotna pönnu. Sveppirnir og hvítkálið steikt í nokkrar mínútu
við meðalhita ásamt timjani, pipar og salti. Þegar kálið er farið að mýkjast ögn er tómötunum
bætt á pönnuna og þeir látnir krauma í 2-3 mínútur. Egg, matreiðslurjómi eða mjólk og dálítið
af pipar og salti hrært saman í skál og hellt yfir grænmetið á pönnunni. Hrært þar til blandan
er byrjuð að stífna. Þá er klettasalati og ostarúllubitum hrært saman við og pönnunni stungið
undir grillið (best að hafa hana 10-15 cm frá grillristinni) þar til yfirborðið er gullinbrúnt og
osturinn bráðinn.

Uppskrift frá

 Logo

Höfundur uppskriftar:
Nanna Rögnvaldardóttir