Smoothie með kanil og grískum jógúrt
Þessi er nú hressandi í morgunsárið þegar kólna fer.
![Smoothie með kanil og grískum jógúrt](/static/news/cinnamon-roll-smoothie-familyfreshmeals.com-such-a-yummy-smoothie-1.png)
Þessi er nú hressandi í morgunsárið þegar kólna fer.
Stútfullur af hollustu og afar saðsamur.
Uppskrift er fyrir 2 drykki.
Hráefni:
1 bolli af vanillu möndlu mjólk
½ bolli af grískum jógúrt – helst vanillu
¼ bolli af höfrum
1 msk af púðursykri – má nota annað sætuefni
¼ tsk af kanil
1 frosinn banani – ef þú notar ferskan skaltu setja ísmola með
Leiðbeiningar:
Þú setur allt hráefnið í blandarann og lætur blandast þar til drykkur er mjúkur.
Njótið vel!