Fara í efni

Gratineraðar kartöflur

Gratineraðar kartöflur

 

 

 

 

 

 

Gratineraðar kartöflur eru dásmalegar og hægt að hafa sem meðlæti eða jafnvel sem aðalrétt.
Hvernig væri að hafa eldamennskuna einfalda og skella í gratineraðar kartöflur?

Innihald:
1,5 kg kartöflur
30 g smjör
400 ml mjólk
200 ml rjómi
1 stk hvítlaukur, saxaður eða kraminn (má sleppa)
Salt, pipar og múskat

Leiðbeiningar:
Hitið ofinn í 190°C.
Smyrjið form með smjöri.
Blandið saman mjólk, rjóma, hvítlauk, salti og pipar í skál. Smakkið til.
Skrælið og sneiðið kartöflurnar.
Setjið kartöflurnar í formið og hellið mjólkinni yfir.
Setjið í miðjan ofn og eldið í ca. 1 klukkustund eða þar til kartöflurnar eru mjúkar.

Höfundur: Kristján Þór
Uppskrift fengin af vefnum: islenskt.is