Fara í efni

Kartöflur – Ný uppskera

Kartöflur, flokkast oftast í hugum fólks sem grænmeti, og jú kartaflan er ræktuð í jörðu en þegar við skoðum hana út frá næringarlegu sjónarmiði þá er hún meira kolvetnagjafi en grænmeti. Ráðleggingar um mataræði frá Embætti Landlæknis mælir með að kartöflur séu hluti af hollu og fjölbreyttu mataræði
Kartöflur eru nýuppteknar nú en geymast vel í réttum aðstæðum
Kartöflur eru nýuppteknar nú en geymast vel í réttum aðstæðum

Nýuppteknar kartöflur eru alltaf góðar sem meðlæti með heitum máltíðum og soðinn fiskur og kartöflur, er nokkuð standard máltíð á mörgum heimilum, í skólum og leikskólum. Smælki með hýðinu á er enn næringarríkara en skrælaðar kartöflur og margir nota smælki mikið í sinni matargerði til að auka fjölbreytileika og gæða máltíðir öðru útliti.

Hér á landi er rík hefð fyrir notkun á kartöflum og flestir kunna að matbúa þær. Þó má alltaf auka fjölbreytnina. Á þessari vefsíðu er að finna margar einfaldar og skemmtilegar kartöfluuppskriftir.
Sjá nánar hér:

Hvað með næringargildi þeirra

Kartöflur eru með mikilvægustu uppsprettum B- og C-vítamíns í fæðunni. Einnig innihalda kartöflur, kalk, fosfór og trefjar. Í þeim er mikill mjölvi sem gerir þær mettandi þó þær séu ekki mjög hitaeiningarríkar. Æskilegt er að sjóða kartöflur með hýðinu, annars tapast mikið af næringarefnum út í suðuvatnið. Séu þær afhýddar fyrir suðu ber að nota eins lítið vatn við suðuna og kostur er og nota síðan vatnið í sósur eða til brauðgerðar til að nýta næringarefnin sem skolast hafa út.

 

Suða

Setjið kartöflurnar í pott og látið vatnið fljóta vel yfir. Sjóðið í 10 – 20 mínútur fer eftir stærð kartaflanna. Nýjar kartöflur þurfa aðeins minni suðutíma. Það má salta vatnið til að skerpa á bragði kartaflanna en það er smekksatriði. Hellið soðinu strax af að suðu lokinni, setjið lokið á pottinn og látið kartöflurnar standa í nokkrar mínútur áður en þær eru bornar fram.

Geymsla

ATH! Nýuppteknar kartöflur eru mjög viðkvæmar og geymast því ekki lengi. Best er að neyta þeirra strax og njóta. Ef þær þurfa geymslu þá er best að hafa þær í ísskáp og passa að lofti vel um þær.

Notkun

Nýuppteknar kartöflur eru alltaf góðar soðnar með smjöri og salti.

Hér á landi er rík hefð fyrir notkun á kartöflum og flestir kunna að matbúa þær. Þó má alltaf auka fjölbreytnina. Á þessari vefsíðu er að finna margar einfaldar og skemmtilegar kartöfluuppskriftir.
Sjá nánar hér:

Hvaða hluta er hægt að borða ?

Af nýjum kartöflum má borða allt.

Innihald í 100 g Vatn 78,6 g
Næringargildi í 100 g
Orka 305 kj
  72 kcal
Fita 0,3 g
Þar af mettuð 0,06 g
Kolvetni 14,2 g
Þar af sykurtegundir 0,6 g
Trefjar 2,0 g
Prótein 2,2 g
Salt 0,01 g
  NV*
Kalíum 400 mg 20%

* Hlutfall af næringarviðmiðunargildum

Upplýsingar:
www.islenskt.is