Fara í efni

Ljúffengir granóla bitar sem ekki þarf að baka - frá Eldhúsperlum

Ljúffengt frá Eldhúsperlum.
Ljúffengir granóla bitar sem ekki þarf að baka - frá Eldhúsperlum

Hafið þið skoðað heimasíðuna Oh she glows? Ef ekki þá mæli ég heilshugar með heimsókn þangað.

Þar má finna aragrúa uppskrifta og góðra ráða sem eiga það allar sameiginlegt að vera í hollari kantinum og oftar en ekki svokallaðar “vegan“ uppskriftir, sem eru þá lausar við allar dýraafurðir, þar með talið egg og mjólkurafurðir.

Þessir dúndurgóðu orkubitar eru einmitt fengnir þaðan og það bregst ekki að allt sem ég hef prófað af síðunni er gott. Eða það þykir mér allavega. Ég myndi þó seint kalla þessa bita hreint og beint hollustufæði, þeir eru í það minnsta frekar orkuríkir og alveg skuggalega góðir, dálítið klístraðir og stökkir. Minna mig helst á blöndu af hráu hafra-smákökudegi og rice krispies kökum. Þeir allavega virka og renna ljúflega niður jafnt hjá ungum sem öldnum. Það er gott að geyma bitana í ísskáp, jafnvel í frysti því þeir eru dálítið lausir í sér þegar þeir ná stofuhita blessaðir. Eða eins og Angela Oh she glows pæja orðar það, þá er best að sporðrenna einum bita, í heilu lagi, beint úr ísskápnum og nei, það er sko ekki erfitt skal ég segja ykkur. Svo það er betra að hafa bitana bara litla og sæta og njóta í botn.

Ljúffengir granóla bitar sem ekki þarf að baka (breytt uppskrift af http://www.ohsheglows.com):

  • 1 1/2 bolli haframjöl
  • 1 bolli rice krispies eða annað blásið, létt morgunkorn – ég notaði hrísflögur frá Sollu
  • 1/2 bolli möndluflögur
  • 1/2 bolli kókosmjöl
  • 2 msk chia fræ
  • 1/2 bolli þurrkuð trönuber
  • 2 msk súkkulaðidropar (má sleppa)
  • 3/4 bolli hreint möndlusmjör, helst úr ristuðum möndlum, fæst t.d í Kosti og er ómótstæðilega gott
  • 1/4 bolli brædd kókosolía
  • 1/4 bolli agavesíróp, hlynsíróp, hunang eða það síróp sem ykkur þykir best
  • 1 tsk vanilluextract
  • 1/2 tsk sjávarsalt

Aðferð: Blandið öllum þurrefnum saman í stórri skál. Pískið saman möndlusmjöri, kókosolíu, sírópi, vanillu og salti og hellið yfir þurrefnin í skálinni. Blandið vel saman. Klæðið lítið form eða eldfast mót með bökunarpappír, hellið blöndunni í og þrýsið vel niður og út í kantana. Stráið yfir nokkrum trönuberjum og súkkulaðidropum og þrýstið aðeins niður. Setjið í frysti í 30 mínútur. Takið þá út og skerið í litla bita. Geymið bitana í frysti eða ísskáp.

Uppskrift af vef eldhusperlur.com