Fara í efni

BLÓMKÁL – Kryddað SESAME Blómkál

Hollt og brjálæðislega gott.
BLÓMKÁL – Kryddað SESAME Blómkál

Hollt og brjálæðislega gott.

Það er svo gama þegar þetta tvennt hittist og föndrar æðislegan rétt sem fær bragðlaukana til að hrópa á meira.

Uppskrift er fyrir einn og einfalt að margfalda hana.

Hráefni:

½ bolli af hveiti

½ bolli af mjólk

1 tsk af lyftidufti

1 tsk af hvítlauksdufti

½ haus af blómkáli

Olía til að steikja – notaðu olíu sem þolir vel mikinn hita

1 msk sesame olía

1 msk af hvítlauksgeirum – kremja

½ bolli af soja sósu

¼ bolli af hrísgrjóna ediki

1 msk af hrá sykri

2 msk af Sriracha

Sesam fræ eftir smekk

Skallot laukur – saxaður

1 msk af kornsterkju – ½ kornsterkja og ½ af vatni

Leiðbeiningar:

Hrærðu saman hveiti, mjólk, lyftidufti og hvítlauksdufti.

Bættu niðurskornu blómkálinu saman við og hristu vel saman. Vertu viss um að það sé þunnt lag af deigi utan um alla bitana.

Taktu djúpan pott og helltu olíunni í hann og láttu hana hitna vel.

Því næst djúpsteikir þú blómkálsbitana þar til þeir eru gylltir. Leggðu þá á pappír eftir steikingu til að draga alla auka olíu í burtu.

Sósan:

Þú blandar saman sesam olíunni, hvítlauk, soja sósu, hrísgrjóna ediki, sykri og sriacha.

Hrærið saman í potti og látið suðuna koma upp og bættu þá kornsterkjublöndunni saman við og leyfið sósunni að þykkna.

Blandið svo blómkálsbitunum saman við sósuna og hristið vel saman.

Skreytið með sesam fræjum eftir smekk.

Skerið niður skallot laukinn og dreifið honum létt yfir allt saman.

Afar gott að bera þetta fram með hrísgrjónum eða fersku salati.

Njótið vel!