Fara í efni

Reiknivélar fyrir Heilsu og Hreyfingu

Reiknivélar fyrir Heilsu og Hreyfingu
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Auglýsinga og markaðsdeild Heilsutorgs er mjög upptekið af allskonar
útreikningum. Þess vegna var safnað saman öllum helstu reiknivélum
sem við koma heilsu og hreyfingu. Við erum sammála um að það má
ekki taka þessum reiknivélum sem einhverjum stóra sannleik. En þær
geta gefið okkur smá innsýn í okkar heilsu og hjálpað við útreikninga á
fæðu og hreyfingu.

 
BMI Stuðull - Reiknivél 

BMI, Body Mass Index, er stuðull sem notaður er til að mæla þá sem geta verið í 
áhættuhóp vegna þyngdar. Þetta er vísbending um næringarástand, bæði undir 
kjörþyngd og yfir. Þetta er ekki mælikvarði á fituprósentu eða heilsu einstaklings. 

BMI Calculator 

Hversu mikið vatn á að drekka - Reiknivél 

Reiknivél fyrir vökvaþörf tekur mið af magni líkamlegrar hreyfingar á hverjum degi.  
Það sýnir mat á því hversu mikinn vökva maður þarf að drekka yfir daginn til að vera vel  
vökvaður og ná hámarksafköstum. 

Liquid Requirement Calculator 

Prótein inntaka - Reiknivél 

Próteininntaksreiknivélin áætlar magn próteins sem einstaklingur þarf að borða á dag.  
Miðað við núverandi líkamsþyngd og þjálfunarmarkmið, er áætlað hversu  
mörg grömm af próteini á að borða samtals á dag. 

Protein Intake Calculator 

Púls - Reiknivél 

Púlsreiknivélin mælir með kjörpúlsi til að miða við, meðan á hreyfingu stendur eins og að  
hlaupa eða hjóla, byggt á sérstöku þjálfunarmarkmiði. Ráðlagður hjartsláttur er mat, 
byggt á hámarks hjartslætti. Það getur verið mismunandi fyrir hvern einstakling. 

Heart Rate Calculator 

Grunn Efnaskipti (BMR) - Reiknivél 

BMR, sýnir hve margar kaloríur á dag líkami einstaklings þarf til  
að framkvæma grunn efnaskipti. Ekki er tekið tillit til auka kaloría sem brennt er við  
líkamsrækt, svo sem þjálfun. 

Basal Metabolic Rate Calculator 

Efnaskipti út frá allri hreyfingu (TDEE) - Reiknivél

Reiknivél sem sýnir samtals daglega orkunýtingu og áætlar fjölda kaloría sem einstaklingur 
brennir yfir daginn út frá allri hreyfingu. 

Basal Energy Rate Calculator 

Svefn -  Reiknivél 

Svefnreiknivélin mælir með því hvenær eigi að fara að sofa til að vakna hress. Hún bendir á  
svefntíma byggðan á stigum svefns. Hafðu í huga: Reiknivélin tekur ekki tillit til þess  
hve lengi maður er að sofna. Að meðaltali tekur það um það bil 14 mínútur að sofna. 

Sleep Cycle Calculator 

Kolvetni - Reiknivél 

Kolvetnisreiknivélin mælir með magni kolvetna á dag. Miðað við æfinga-ákefð er gefið upp 
áætlun um hversu mörg grömm af kolvetnum einstaklingur ætti að borða yfir daginn. 

Carbs Calculator 

Kaloríubrennsla reiknuð út frá hjartslætti - Reiknivél 

Reiknivélin sem byggir á hjartslætti og gefur mat á fjölda kaloría sem þú brennur á  
meðan á líkamsþjálfun stendur. Áætlaðar kaloríur sem þú brennir, eru byggðar á  
meðal hjartsláttartíðni meðan á líkamsþjálfun stendur, lengd líkamsþjálfunar og aldri viðkomandi. 

Heart Rate Based Calorie Burn Calculator 

Hlaupameðalhraði - Reiknivél 

Reiknivél hjálpar til við að ákvarða hlaupahraða fyrir hlaup 
eða reikna út hraða á fyrri hlaupum. Hraðareikninn er hægt að nota með því að  
velja fjarlægð eða slá inn fjarlægð í km og tíma. 

Pace Calculator 

Líkamsfita - Reiknivél

Reiknivél líkamsfitu áætlar líkamsfituprósentu. Það notar hæð, mitti og hálsmælingar  
til að ákvarða ummálsgildi þitt. Mælingar á mjöðm eru einnig með í útreikningum fyrir konur. 

Body Fat Percentage Calculator 

Heimild runtastic.com