Fara í efni

Fáðu þér hollt Taco í morgunmat – Uppskrift

Þetta er eins og Burrito, nema miklu hollara!
Hollustu Taco í morgunmat
Hollustu Taco í morgunmat

Ég hef fengið mér morgunverða Burrito áður, en aldrei Taco, enda hefur það ekki haft hollustu stimpil á sér hingað til.  En þessi morgunverðar Taco uppskrift er full af trefjum, prótíni úr baunum og eggjum og hollri fitu úr avókadó.   Það er ekki flókin samsetning eða langur innkaupalisti, súper fljót að græja þetta í morgunsárið.

 

 

Taco morgunverður fyrir 2

Hráefni

  • 2 lífrænar tortillur, hitaðar
  • ½ bolli svartar baunir (hellst án sódíum)
  • 1 tsk malað kúmen
  • 1 tsk túrmerik
  • Salt og pipar eftir smekk
  • 4 egg ( 2 heil og 2 eggjahvítur)
  • 2 bollar spínat eða grænkál (eða blanda af báðu)
  • 4 tsk kókós olía eða extra virgin olía
  • ½ avókadó, skorin þunnt
  • Steinselja til að setja punktinn yfir i-ið
  • Taco sósa ef þú vilt krydda líf þitt aðeins fyrir daginn!

Aðferð

Hrærðu saman 2 heil egg og eggjahvítu úr tveimur, sett til hliðar. Settu tortillurnar á góðan hita í ofninum þar til að þær eru orðnar vel stökkar.  Hitaðu við lágan hita svörtu baunirnar, túrmerik,kúmen, salt og pipar.  Á meðan þessi blanda er að hitna, settu þá 2 tsk af olíu í pott og hitaðu aðeins upp spínatið og grænkálið.  Settu restina af olíunni á pönnu og steiktu nú eggin. Settu heitar tortillur á disk, settu baunirnar fyrst, spínat og svo egg.  Toppar þetta með avókadó og steinselju. 

Eigðu góðan og orkumikinn dag.