Um að gera að taka þátt í skemmtilegu 10 km hlaupi með með hlaupurum af öllum stigum. Komum okkur í gírinn rétt fyrir Verslunarmannahelgina.
Fullt af frábærum vinningum, bæði fyrir sæti og útdráttarvinningar.
Íþróttadrykkur verður í boði eftir 5 km og í endamarki. Eftir hlaupið verður stemmning á svæðinu, næring, drykkir, verðlaunaafhending, útdráttarverðlaun og tónlist. Þátttakendur eru hvattir til að gefa sér stund eftir hlaupið og taka þátt í að mynda skemmtilega stemmningu.
Hlauparar eru hvattir til að skrá sig á hlaup.is, skráningu lýkur á miðnætti 1. ágúst. Hægt verður að skrá sig í GÁP í Faxafeni milli kl. 12 og 18 á hlaupdag. Keppnisgögn eru afhent í GÁP í Faxafeni milli kl. 12 og 18 á hlaupdag.