Adidas Boost hlaupið er skemmtilegt 10 km götuhlaup sem fer fram miðvikudaginn 29. júlí kl. 20:00 í hjarta Reykjavíkur, á einni hröðustu og vinsælustu hlaupaleið landsins.
Hlaupið byrjar við Rafstöðvarheimilið í Elliðaárdal og liggur upp Elliðarárdalinn í átt að Árbæjarlaug, þar yfir brúnna og til baka niður Elliðárdalinn, undirgöngin og þaðan út í Fossvogsdal fram hjá Víkinni og sem leið liggur í átt að Svartaskógi og til baka og endamarkið er rétt við rætur Rafstöðvarbrekkunnar.
Hvort sem markmiðið er að setja nýtt persónulegt met, taka góða æfingu eða njóta þess að hlaupa í fallegu umhverfi, býður Adidas Boost upp á kjöraðstæður fyrir hlaupara á öllum getustigum. Leiðin er löglega mæld af FRÍ og liggur um skjólgóða og fallega stíga Elliðaárdals og Fossvogsdals og er tilvalin fyrir þau sem stefna á nýtt persónulegt met eða vilja einfaldlega njóta kraftmikillar hlaupaupplifunar í hjarta Reykjavíkur.
Adidas Boost byggir á sterkri hefð og var valið annað besta götuhlaup ársins 2022 af lesendum Hlaup.is.
Gpx af leiðinni og nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Víkingamótanna.
Nánari upplýsingar info@vikingamot.is
Þátttökugjald:
Forskráðir fyrir sunnudaginn 28. júní:
Skráning eftir sunnudaginn 28. júní:
Skráningu lýkur miðvikudaginn 29. júlí kl. 18:00.