Vegalengdir
Boðið er upp á 5 km og 10 km götuhlaup, 1 km skemmtiskokk og um 18 km utanvegahlaupið ATWORK MEGA TRAIL með 400m hækkun. 5 km og 10 km er FRÍ vottað.
Innifalið í skráningargjaldi:
Eftir hlaup verður boðið upp á veglegar veitingar í íþróttahúsinu og allir þátttakendur fá frítt í sund og gufu að loknu hlaupi. Einnig verður Spákonuhof og veitngarhús staðarins opin. Hægt að panta taldstæði og þar er frisbí gólfvöllur staðsettur eða hótelgistingu ásamt því að skella sér í strandblak. Pöntun og fyrirspurn um tjaldstæðið 776 0040 eða skagastrond.camping@gmail.com
Hlaupaleiðir
ATWORK MEGA TRAIL utanvegahlaupið verður ræst frá höfninni kl. 14:00 og hlaupið sem leið liggur upp að Spákonufelli og hringinn í kringum fellið og til baka að höfninni.
1 km skemmtiskokkið er kjörið fyrir yngstu hlauparana og oft hlaupa foreldrar við hlið unganna sinna og með því móti átt sameiginlega reynslu á hlaupabrautinni og búið til góðar minningar og stemmingu.
Skráning
Skráning fer fram á www.netskraning.is, hægt er að skrá sig þar til kl. 21:00, 18. júlí og á staðnum til kl. 13:00 á hlaupdegi. Afhending keppnisnúmera fer fram í íþróttahúsinu Bogabraut 2 frá kl. 10 - 13, 19. júlí og frá kl. 16-18 18. júlí hjá Atwork Túngötu 1 - 3 á Skagaströnd en þar er einnig boðið upp á aðstoð við ný skráningu og ef breyta þarf um vegalengd.
Hægt verður að geyma fatnað undir eftirliti í íþróttahúsinu á meðan hlaupið er.
Ekkert aldurstakmark er í götuhlaupin en aldurstakmark er 15 ára (f. 2011) í ATWORK MEGA TRAIL utanvegahlaupið.
Hlaupið er skipulagt í samvinnu vð Ungmennfélagið Fram og allur ágóði rennur til þess til áframhalda uppbyggingar á miðpunkti Norðvesturlands.
Verðlaun
Peningaverðlaun eru í boði fyrir fyrstu þrjá í 5 km, 10 km og ATWORK MEGA TRAIL 18 km utanvegahlaupinu.
Verðlaun verða veit fyrir fyrstu þrjú sætin í hverri vegalengd og viðurkenningar í öllum flokkum.
Skráning
https://netskraning.is/skagastrandarhlaupid/
Nánari upplýsingar: frida@heilsutorg.is eða Fríða Rún Þórðardóttir, sími 898 8798
Facebook: aframatwork_skagastrandahlaupið
Instagram: aframatwork_skagastrandahlaupið