|
Á unglingalandsmóti Ungmennafélags Íslands á Sauðárkróko mun ríkja sannkölluð fjölskyldu- og íþróttastemming. Boðið verður upp á rúmlega 20 íþróttagreinar auk þess sem heilmikil afþreying verður í boði fyrir alla fjölskylduna og tónleikar á kvöldin. Fjölbreytt dagskrá verður alla dagana og ættu því flestir að finna eitthvað við sitt hæfi. Mótið hefst fimmtudaginn 30. júlí og lýkur því á sunnudagskvöldið 2. ágúst. Opið er fyrir skráningu á mótið til 26. júlí næstkomandi. Búist er við nokkuð þúsund manns á svæðinu og því mikilvægt að klára skráningu fyrr en seinna. Keppnisgreinar: Badminton - Bogfimi - Frisbígolf - Frjálsar íþróttir - Glíma - Golf - Grasblak - Grashandbolti - Hestaíþróttir - Götuhjólreiðar - Júdó - Knattspyrna - Krakkahreysti - Kökuskreytingar - Körfubolti - Motocross - Parasport og Special Olympics - Pílukast - Skák - Stafsetning - Sund og Upplestur. Boðið verður líka upp á fjölda opinna greina fyrir alla aldurshópa, allskonar sem hægt er prófa og margt fleira. Þetta verður sannkallað fjölskyldufjör. Á meðal annarra viðburða: Freestyle danskeppni - Kynning á útiveruspilum frá Færni til framtíðar - Fjöruhlaup fyrir alla fjölskylduna á sandströnd - Íþróttaálfurinn og Solla stirða sjá um Latabæjarfjör - LED badminton - körfuboltadjamm - göngufótbolti - pokavarp - Flag football - Morgunjóga - Hobbíhestar - Danspartí fyrir fjölskylduna - Ofurhetjuhlaup fyrir 10 ára og yngri - Hæfileikasvið - Frisbígolf fyrir alla fjölskylduna og margt fleira! https://www.umfi.is/vidburdir/unglingalandsmot/dagskra/
|
| Smelltu og skoðaðu dagskrána |