Evrópska krabbameinsvikan og Krabbameinsfélagið
Krabbameinsfélagið á Íslandi er öflugt almannaheillafélag sem hefur þann tilgang að styðja og efla í hvívetna baráttuna gegn krabbameinum. Félagið var stofnað 27. júní 1951 en þá voru nokkur svæðafélög þegar starfandi. Félagið starfar á ýmsum sviðum en þau eru fræðsla, forvarnir og útgáfustarfsemi, ráðgjöf og stuðningur, vísinda- og félagsstarf, hagsmunagæsla og fjáröflun.
Nánar má lesa um starfsemi Krabbameinsfélagsins hér https://www.krabb.is/starfid/felagid
Nýjasta verkefnið er þátttaka í Evrópsku krabbameinsvikunni (European week against cancer) þá vekja evrópsk krabbameinsfélög athygli á ýmsum þáttum sem skipta máli í því marghliða verkefni sem krabbamein er.
https://www.krabb.is/starfid/frettir-og-midlun/evropska-krabbameinsvikan-vid-tokum-thatt-2
Sérstaklega er þarft að vekja athygli á verkefninu „Nikótínpúðar – Unga fólkið – Markaðsöflin“ en opinn rafrænn fundur skipulagður af WHO (alþjóðaheilbrigðismálastofuninni) var haldinn um málefnið 28. maí sl. Megin umfjöllunarefnið var hvernig nikótíniðnaðurinn knýr áfram útbreiðslu nikótínpúða og hvaða áskoranir það skapar fyrir lýðheilsu og regluverk (Exposing Industry Tactics Behind Nicotine Puch Expansion and the Regulatory Implications). Viðburðurinn tengdist alþjóðlega tóbakslausa deginum (World No Tobacco Day) 2026 sem í ár hefur ensku yfirskriftina „Unmask the appeal – countering nicotine and tobacco addiction“. Lesa má um áhrif notkunar tóbaks á heilsuna https://www.krabb.is/starfid/frettir-og-midlun/markadsoflin-saekja-ad-althjodlegi-tobakslausi-dagurinn
Ástæðan fyrir þeim fókus er að ungt fólk er sérstaklega viðkvæmt fyrir neikvæðum áhrifum nikótíns en notkun níkótínpúða er að aukast á heimsvísu og er Ísland þar engin undantekning. Til dæmis sýna kannanir að þriðjungur ungs fólks á Íslandi notar nú nikótínpúða og er hlutfallið það hæsta á Norðurlöndunum. Ungt fólk er sérstaklega viðkvæmt fyrir ýmsum neikvæðum áhrifum nikótíns, ekki hvað síst vegna áhrifa á heilaþroska sem á sér stað vel fram yfir tvítugt, auk þess sem líkur á mikilli fíkn aukast eftir því sem einstaklingar byrja yngri. Nikótínnotkun getur einnig haft ýmis skaðleg áhrif, meðal annars á munnheilsu, hjarta- og æðastarfsemi og andlega líðan auk þess sem ekki má gleyma að langtímaáhrif eiga eftir að koma í ljós.
Því er verulega mikilvægt að fjallað sé um það hvernig öflug markaðsöfl og hagsmunaaðilar knýja áfram útbreiðslu vöru sem er langt frá því að vera eins saklaus og oft er látið í veðri vaka. Almenningur og yfirvöld þurfa að átta sig á hvernig markviss markaðssetning hefur áhrif á útbreiðslu nikótínpúða meðal ungs fólks.
Heilsutorg hvetur lesendur til að kynna sér vel efnið á vef Krabbameinsfélagsins því það að vera vel upplýstur er mikilvægt fyrir heilsu og velferð til framtíðar.
