Fara í efni

Kjúklingur með paprikusalsa

Kjúklingur með paprikusalsa

 

 

 

 

 

 

 

 

Nú ætlum við að skella í einn sumarlegan kjúkling og er að sjálfsögðu bæði hægt að grilla eða 
steikja kjúklinginn á pönnu. Einfaldur og þægilega réttur og hreint afskaplega hollur og góður.

Kjúklingur með paprikusalsa 

  • 4 kjúklingabringur, beinlausar og hamflettar 
  • 2 stk ferskt rósmarín, saxað 
  • nýmalaður pipar 
  • salt 
  • olífuolía 
  • 3 íslenskar paprikur, grænar, gular og rauðar 
  • 2 íslenskir tómatar, vel þroskaðir 
  • ½ lárpera, þroskuð 
  • grænu blöðin af 2 – 3 vorlaukum 
  • safi úr ½ sítrónu 
  • safi úr 1 límónu 
  • ferskur koriander 


Kjúklingurinn kryddaður með rósmarín, pipar og salti og steikur í dálítilli olíu á pönnu við meðalhita í um 8 mín. á hvorri hlið, eða grillaður, þar til hann er rétt steiktur í gegn (gott að skera í eina bringuna til að athuga hvort hún er gegnsteikt). Á meðan eru paprikurnar fræhreinsaðar og skornar í litla teninga. Tómatar og lárperan skorin í teninga og vorlaukurinn sneiddur. Öllu blandað saman í skál, kryddað með pipar, salti, og sítrónu- og límónusafi kreistur yfir. Söxuðum kóríander blandað saman við og látið standa smástund. Dreift á diska eða fat og kjúklingabringunum raðað ofan á. Salsan er líka góð með steiktu og grilluðu lamba- og nautakjöti, fiski o.fl. 

Þessi uppskrift kemur frá vefsíðu íslenskt.is

Islenskt grænmeti

Höfundur uppskriftar: 
Nanna Rögnvaldardóttir