Fara í efni

Heilsteiktur kjúklingur í bjórsoði með 20 hvítlauksrifjum frá Eldhúsperlum

Heilsteiktur kjúklingur hittir alltaf í mark.
Heilsteiktur kjúklingur í bjórsoði með 20 hvítlauksrifjum frá Eldhúsperlum

Heilsteiktur kjúklingur hittir alltaf í mark á mínu heimili. Það er varla til einfaldari matur og okkur þykir hann alveg ómótstæðilega góður. Þetta er líka svona matur sem tekur litla stund í undirbúningi, maður hendir inn í ofn og gleymir honum svo þar til klukkustund seinna.

Ég ákvað að prófa á dögunum að elda kjúklinginn aðeins hægar en venjulega og hafði ofninn frekar lágt stilltan, auk þess hafði ég þéttan álpappír yfir og bragðgott soð í botninum á fatinu. Það má því eiginlega segja að kjúklingurinn hafi gufueldast við vægan hita fyrst um sinn í dásamlegri gufu af bjór, hvítlauk og sítrónum.

Undir lok eldunartímans er hitinn svo hækkaður hressilega, álpappírinn tekinn af og kartöflum bætt í fatið. Þá myndast gullin og stökk húð á fuglinn og útkoman einhver safaríkasti og besti kjúklingur sem við höfðum smakkað.

Kjúklingurinn er svo borinn fram með himnesku soðinu sem hægt væri að drekka með röri. Mér fannst alls ekki koma yfirgnæfandi hvítlauksbragð af soðinu, við svona hæga eldun verður hvítlaukurinn mjúkur og sætur og gefur soðinu og kjúklingnum ákaflega gott bragð sem passar svo einstaklega vel við bjórinn í soðinu.

Heilsteiktur kjúklingur í bjórsoði með 20 hvítlauksrifjum:

  • 1 heill vænn kjúklingur (1,5-1,7 kg)
  • Ólífuolía
  • Sjávarsalt, nýmalaður pipar og rósmarín
  • 1 sítróna
  • 1 stór laukur
  • 20 hvítlauksrif
  • 330 ml ljós bjór (einnig væri hægt að nota pilsner)
  • 3 dl kjúklingasoð (1/2 kjúklingateningur+3 dl heitt vatn)
  • 2 bökunarkartöflur
  • 1/2 – 1 sæt kartafla

Aðferð:

Hitið ofn í 150 gráður. Náið ykkur í stórt eldfast mót eða ofnskúffu. Hreinsið kjúklinginn og þerrið hann vel með eldhúspappír. Skerið laukinn í þykkar sneiðar og leggið í botninn á fatinu. Makið kjúklinginn með smávegis ólífuolíu og kryddið hann vel með salti og pipar, setjið hálfa sítrónu inn í kjúklinginn ásamt 2-3 hvílauksrifjum. Leggið kjúklinginn ofan á lauksneiðarnar. Dreifið hvítlauksrifjunum í fatið ásamt restinni af sítrónunni. Hellið bjórnum yfir ásamt kjúklingasoði.

Leggið álpappír nú vel yfir fatið svo gufan sleppi ekki við eldun. Setjið kjúklinginn inn í ofn í 1 klst (eða þar til kjarnhiti í þykkasta hluta bringunnar er kominn í 60 gráður).

Takið kjúklinginn þá út og takið álpappírinn af. Hækkið ofnhitann í 220 gráður. Skerið kartöflurnar í teninga og dreifið í kringum kjúklinginn. Dreifið smávegis af ólífuolíu yfir og kryddið yfir allt saman með salti, pipar og rósmarín. Bakið áfram í 30 mínútur eða þar til hitinn í bringunni er kominn í 70 gráður. Takið kjúklinginn út og leyfið honum að jafna sig í 15 mínútur áður en hann er skorinn. 

Uppskrift frá eldhusperlur.com