Fara í efni

Eru kartöflur hollar eða óhollar?

Mörgum finnst engin máltíð fullkomin nema með kartöflum á meðan aðrir finna kartöflum allt til foráttu.
Eru kartöflur hollar eða óhollar?

Mörgum finnst engin máltíð fullkomin nema með kartöflum á meðan aðrir finna kartöflum allt til foráttu.

Axel F. Sigurðsson hjartalæknir hefur skyggnst aðeins undir yfirborðið og þessi fróðleiksmoli kemur af vefsíðunni hans mataraedi.is

Meðalstór kartafla inniheldur um 100 – 110 hitaeiningar. Í 100 grömmum af hráum kartöflum eru um 72 hitaeiningar. Nokkuð sláandi er að í 100 grömmum af frönskum kartöflum eru rúmlega 300 hitaeiningar.

Hrá kartafla inniheldur um 79 prósent af kolvetnum, 12 prósent af prótínum, 3 prósent af fitu og 5 prósent af trefjum. Fitu – og prótínmagnið minnkar við suðu. Franskar kartöflur innihalda aftur á móti um 44 prósent af fitu og 47 prósent af kolvetnum.

Prótíninnihald kartöflunnar er tiltölulega lágt. Prótínin hafa þó hátt líffræðilegt gildi (biological value) og eru því svokölluð gæðaprótín. Fituinnihald kartaflna er lítið en er þó talið mikilvægt fyrir bragðið. Kartöflur eru kolvetnaríkar. Kolvetnin eru aðallega í formi sterkju sem er fjölsykra. Ein – og tvísykrur (aðallega súkósi og frúktósi) eru mestar í nýuppteknum kartöflum en þær minnka við geymslu. Kartöflur eru trefjaríkar, sérstaklega ef hýðið er borðað líka. Engin ástæða er til að afhýða nýjar kratöflur því hýði þeirra er oftast þunnt, ferskt og bragðgott.

Kartöflur eru ríkar af C-vítamíni. Þær innihalda einnig mikið af B-6 vítamíni, fólinsýru, riboflavíni, þíamíni og niacini. Þær eru ríkar af steinefnum, sérstaklega kalíum en einnig fosfór, joði, járni, kalki, kalíum, magnesíum, natríum, selen, sinki, kopar, krómi, molýbden, kóbolti, kadmíum og blýi.

Kartöflur innihalda eiturefni sem nefnist sólanín og tilheyrir svokölluðum alkaloíðum. Það er töluvert af þessu efni í kartöfugrasinu, fræjum þess og spírunum. Mjög lítið er af sólaníni í kratöflunni sjálfri og því er ekki hætta á eitrunareinkennum við neyslu kartaflna.

Eru kartöflur hollar eða óhollar?

Árið 2011 viðurkenndu Bandarísku hjartasamtökin, American Heart Assoication, Idaho kartöflur sem heilsusamlega og holla fæðu. Aðalrök samtakanna var hátt næringargildi, hátt trefjamagn og lágt innihald mettaðrar fitu og kólesteróls. Þar með fengu bandarískir kartöflubændur uppreisn æru því kartaflan hafði átt undir högg að sækja um skeið, ekki síst vegna mikils áhuga Bandaríkjamanna á lágkolvetnamataræði.

Fyrir tæpum tveimur árum vakti Bandaríkjamaðurinn Chris Voigt mikla athygli þegar hann borðaði ekkert nema kartöflur í 60 daga. Markmið hans var að borða 20 kartöflur á dag sem . . . LESA MEIRA