Fara í efni

Sannleikurinn frelsar - Guðni lífsráðgjafi með mánudagshugleiðingu

Sannleikurinn frelsar - Guðni lífsráðgjafi með mánudagshugleiðingu

Sá sem stendur á svona krossgötum þarf að spyrja sig hvort hann vilji heyra sannleikann, vilji segja sannleikann og lifa í sannleika.

Það er sannleikurinn sem frelsar; sannleikurinn opnar fyrir hæsta mögulega styrk og gefur hjartanu fullt slagrými.

Sá sem vill ekki gefa sig og sleppa tökunum forðast umgjörð eins og heitan eldinn. Inn á milli, í mikilli þjáningu, kann að hugsast að hann taki skref í átt að aukinni velsæld, en þar til hann hefur náð að segja „ég elska mig samt“ mun hann ekki öðlast frekari heimild til að sækja sér velsæld og því verður viðleitni hans aðeins fálmkennd og endaslepp.

Því að við forðumst agann og umgjörðina um kraftaverkið eins og heitan eldinn – þar til við trúum því að við eigum það skilið. Við sleppum ekki tökunum á þjáningunni, refsingunni og álögunum og veljum ekki að stíga yfir þröskuld þjáningarinnar, inn í rými velsældar og kyrrðar, fyrr en við gerum það með heimild, af festu og aga.