Fara í efni

Ljósið - laugardagur og Guðni með hugleiðingu um ljósið

Ljósmynd: Thiago Alexandre
Ljósmynd: Thiago Alexandre

Allt sem þú veitir athygli vex og dafnar. Ljós bara er, það bara skín, það bara veitir orku sinni í hvaðeina sem er til í að taka við henni. Ljósið skín ekki fyrir móttakandann, það skín ekki til að láta eitthvað vaxa og dafna; ljósið skín af því að það er eðli þess og óumbreytanlegur sannleikur – að skína er tilgangur ljóssins.

Athygli er ljós, ást og ást er val. Athygli er þakklæti og þakklæti er val.

Ljós er líf.
Ljós er ást.
Ljós er allt sem er.
Allt annað er blekking.

Öll afstaða, allir dómar, allir mælikvarðar um gott eða slæmt eða vont eða gott.

Það er bara ást. Það er bara ljós. Það er bara líf. Allt annað er blekking.