Fara í efni

Sykur og glútenlausar hollustupönnukökur - gaman að bjóða uppá

Fékk ofsalega löngun í pönnukökur og bjó til þessar hollustupönnsur. Já ég veit þær líta alls ekki út eins og þessar klassísku þunnu pönnukökur eins og maður fékk hjá ömmu í gamla daga. Enda eru þessar alveg án sykurs og hveitis og eru þar með glútenlausar. Þessa uppskrift fékk ég og breytti aðeins úr bókinni “Wheat Belly: Cookbook” mæli með bæði þessari bók og eins bókinni sem kom út á undan matreiðslubókinni sem heitir “Wheat Belly.” Mjög áhugaverð lesning um hveiti, þróun þess og hvaða áhrif það hefur og getur haft á heilsufar okkar mannfólksins.
Sykur og glútenlausar hollustupönnukökur
Sykur og glútenlausar hollustupönnukökur

Fékk ofsalega löngun í pönnukökur og bjó til þessar hollustupönnsur.  

Já, ég veit þær líta alls ekki út eins og þessar klassísku þunnu pönnukökur eins og maður fékk hjá ömmu í gamla daga enda eru þessar alveg án sykurs og hveitis og eru þar með glútenlausar.  

Þessa uppskrift fékk ég og breytti aðeins úr bókinni “Wheat Belly: Cookbook” mæli með bæði þessari bók og eins bókinni sem kom út á undan matreiðslubókinni sem heitir “Wheat Belly.”  Mjög áhugaverð lesning um hveiti, þróun þess og hvaða áhrif það hefur og getur haft á heilsufar okkar mannfólksins.

Innihald:

  • 3 bollar möndlumjöl
  • 1 msk möluð hörfræ
  • ½ tsk sjávarsalt
  • ½ tsk matarsódi
  • 3 stór egg
  • ¾ bolli möndlumjólk eða kókosmjólk
  • 2 msk kókosolía (bráðin)
  • Kókosolía til steikingar


 Aðferð:

  • Þurrefnunum blandað saman í skál.
  • Eggin eru pískuð í annarri stærri skál (t.d. í hrærivél). 
  • Mjólkinni og olíunni bætt við eggin og blandað vel saman.
  • Hægt og rólega er möndlumjölsblöndunni blandað saman við eggjablönduna – matskeið fyrir matskeið.
  • Áferð deigsins ætti að vera svipað og venjulegt pönnukökudeig nema aðeins grófara. 
  • Ef deigið er of þykkt bættu þá við 1 msk af möndlumjólk.
  • Smá kókosolía sett á pönnu og haft á meðalhita.
  • Það er ágætt að hafa pönnsurnar í minni kantinum til að ráða betur við þær.  Möndlumjölið getur haft þau áhrif að þær haldist ekki nógu vel saman – ef þær eru litlar þá verður þetta ekkert mál.
  • Steikt í u.þ.b. 3 mínútur á hlið eða þar til loftbólur myndast.  Gott líka að hreyfa þær aðeins til á pönnunni með spaða og fylgjast með hvernig liturinn er undir.  Passa líka hitann – þær eru fljótar að brenna.

Það er einnig hægt að nota þetta deig og gera þetta í vöfflujárni.

Æðislegar með stöppuðu avokadó, hnetusmjöri eða jafnvel túnfisksalati.  Sjá hér uppskrift að túnfisksalati.

Geymast í loftþéttu íláti í kæli.  Fínt að nota þessar í nestið.

Njótið!

Með heilsukveðju,

Ásthildur Björns
Hjúkrunarfræðingur B.Sc
Heilsumarkþjálfi
ÍAK-einkaþjálfari