Fara í efni

Súperfæði fyrir fallega húð og glansandi hár

Og hvað er svo þetta súperfæði sem er svona ofsalega gott fyrir húð og hár?
Súperfæði fyrir fallega húð og glansandi hár

Og hvað er svo þetta súperfæði sem er svona ofsalega gott fyrir húð og hár?

Fegurðin kemur innan frá, svo það skiptir miklu máli hvað þú setur ofan í þig.

Óhollusta er áskrift á slæma húð, eins áfengi, reykingar og fleira.

Taktu hollustuna á þetta og fylgstu með hvort húð og hár verði ekki dásamlega falleg og sýni heilbrigðan lífsstíl.

Hér er súperfæðið:

Rósmarín

Ekki bara gott á kartöflurnar þínar, heldur er þessi ferska og viðarkennda jurt dásamleg fyrir hárvöxt og hún örvar einnig blóðstreymi í líkamanum. Búðu þér til te og notaðu ferskt eða þurrkað rósmarín og drekktu bolla daglega. Einnig má búa til te sem þú getur skolað hárið upp úr eða gera olíu fyrir hárið og muna þá að nota essential dropa saman við uppáhalds olíuna þína.

Grasker

Grasker eru afar rík af vítamínum og steinefnum og eru tilvalin til að neyta ef þú vilt fá heilbrigða húð og fallegt hár. Þú getur borðað grasker eða stappað það með kókóshnetuolíu og búið til andlitsmaska.

Epli

Ekki lengur best geymda fegrunar leyndarmálið. Notaðu hrá epla edik á húðina. Einnig má nota þetta í hársvörðinn. Epla edik er gott til að losna við bólur og húðvandamál.

Gulrætur

Allir vita að gulrætur eru góðar fyrir sjónina. En þau næringarefni sem eru í gulrótum eru einnig afar góð fyrir húð og hár. Gulrætur eru fullar af beta-carotene sem breytist í A-vítamín í líkamanum, A-vítamín styrkir hárið og gerir það þykkra. Einnig eru gulrætur ríkar af C-vítamíni sem er afar nauðsynlegt fyrir framleiðslu kollagens í líkamanum. Kollagen er nauðsynlegt vegna þess að það gefur húðinni þann teygjanleika sem hún þarf.

Grænkál

Ef maginn á þér er ekki að höndla grænkál, skelltu því þá framan í þig. Án gríns, þú getur búið til andlitsmaska úr grænkáli og kókósolíu. Grænkál gefur mikinn raka og styrkir húðina vel. Það er ríkt af K-vítamíni sem dregur úr bólgum og dökkum baugum. Borðaðu það eða berðu það framan í þig. Húðin stórgræðir á því.

Ef þú vilt lesa meira um góðgæti fyrir húð og hár, smelltu þá HÉR.

Heimild: mindbodygreen.com