Fara í efni

SMOOTHIE – Bananadrykkur með möndlum

Möndlur eru þrusugóðar fyrir heilsuna og svo er einnig bananinn.
SMOOTHIE – Bananadrykkur með möndlum

Möndlur eru þrusugóðar fyrir heilsuna og svo er einnig bananinn.

Í þessum drykk eru einnig hrá hunang og lífrænn jógúrt.

Flottur drykkur til að byrja daginn á.

Uppskrift er fyrir 3 drykki.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hráefni:

2 bananar

1 bolli af appelsínusafa – sykurlausum og helst beint úr djúsaranum þínum

¾ bolli af hreinum lífrænum jógúrt

1 msk af hrá hunangi

1/3 bolli af hrá möndlum

Dass af múskat

Leiðbeiningar:

Skelltu möndlum í blandarann og látt þær myljast í fínasta duft.

Bættu nú öllum hinum hráefnunm saman við möndluduftið og skelltu á mesta hraðann og láttu blandast vel eða þar til drykkur er mjúkur.

Það má svo toppa drykkinn með smá múskat.

Hellist í glas eða glös og drekkist strax.

Njótið vel!