Fara í efni

Sæt kartafla með spínatfyllingu og radísusalati frá FoodandGood.is

Hvað er hægt að segja annað en nammi namm. Alveg brjáluð hollusta hér í gangi. Spínat, sæt kartafla, tómatar og fleira.
Sæt kartafla með spínatfyllingu og radísusalati frá FoodandGood.is

Hvað er hægt að segja annað en nammi namm.

Alveg brjáluð hollusta hér í gangi. Spínat, sæt kartafla, tómatar og fleira.

Hráefni: 

1 stór sæt kartafla
2 lúkur spínat
1 lúka basilíka
10 stk. kokteiltómatar
2 stk. ostasneiðar
3 msk. grísk jógúrt
Olía
Salt og pipar

Leiðbeiningar:

Ofninn hitaður á 200. Skolið sætu kartöfluna og skerið í tvennt. Bökunarpappír settur í botninn á eldföstumóti og kartöfluhelmingarnar lagðir ofan á (hýðið er látið snúa upp). Kartaflan er bökuð í ofninum í um það bil 40 – 50 mín. eða þar til hún er orðin mjúk. 

Hitið olíu á pönnu, setjið spínatið, basilíkuna, tómatana salt og pipar á pönnuna og steikið í hræru. Takið pönnuna af hellunni og kælið í smá stund. 

Notið skeið við að skafa innan úr kartöfluhelmingunum og stappið í mauk. Skiljið ca 1 sm af kartöflunni eftir. Bætið kartöflumaukinu útí spínathræruna og hrærið grísku jógúrtinni saman við. Fyllið kartöflubátana með hrærunni og skerið ostsneiðarnar í tvennt og setjið yfir. Setjið fylltu kartöflurnar í elfastmót og inní ofn 15 – 20 mínútur eða þar til osturinn er bráðnaður.

Hráefni í Radísusalatið: 

Kál
Gúrka
Kokteiltómatar
Mozarellaostur
Radísur
Olía

ps: það má bæta við engifer og hvítlauk.

Njótið vel ! 

Þessi dásemd kemur frá FoodandGood.is