Fara í efni

MORGUNVERÐUR – samloka með beikoni, eggjum og grænmeti

Kryddaðu upp á hina hefðbundnu morgunverðar samloku með því að nota grænkál eða þitt uppáhalds græna grænmeti.
MORGUNVERÐUR – samloka með beikoni, eggjum og grænmeti

Kryddaðu upp á hina hefðbundnu morgunverðar samloku með því að nota grænkál eða þitt uppáhalds græna grænmeti.

Undirbúningstími eru um 15 mínútur, eldunartími eru um 25 mínútur og uppskrift er fyrir 4 samlokur.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hráefni:

4 sneiðar af beikoni – skornar í þunnar ræmur

1 meðal stór gulur laukur, skorin í tvennt og í þunnar sneiðar

6 fullir bollar af grænkáli

Pipar

2 msk af olíu að eigin vali

4 stór egg

4 grófar enskar múffur eða gróft brauð – ristað

½ hvítlauksgeiri

Leiðbeiningar:

  1. Taktu stóra járnpönnu og eldaðu beikonið á meðal hita, muna að snúa lengjum við og elda þar til beikon er krispí og brúnað – tekur um  8 – 10 mínútur. Þegar þú tekur beikonið af pönnunni mundu þá að þetta fitu í burtu. Helltu nú fitunni af pönnu, öllu nema 1 ½ tsk og skelltu lauknum saman við. Settu lokið á og eldið á meðal hita, hrærið öðru hvoru, þar til laukur er mjúkur – tekur um 5 mínútur, þá tekur þú lokið af og lætur hann malla þar til hann er létt gylltur. Skelltu núna grænkálinu saman við ásamt pipar eftir smekk. Settu smá vatn á pönnuna og eldaðu undir loki á meðal hita og hrærðu öðru hvoru. Grænkálið á að vera mjúkt en ekki krispí eftir eldun – þetta tekur um 5 mínútur. Bætið nú beikoninu á pönnuna.
  2. Í stóra pönnu setjið nú 1 tsk af olíu á meðal hita. Setjið eggin á og lok yfir og eldið í um  2 mínútur. Snúið eggjum við og eldið í um 10 til 30 sek í viðbót, fer eftir því hversu vökva kennd eggin eru.
  3. Ristið nú ensku múffurnar ykkar eða brauðið með því sem eftir er af olíunni og nuddið á hvítlaukum. Setjið grænmetið á helming af ensku múffunni eða aðra brauðsneiðina og skellið eggi ofan á. Lokið samlokinni og berið fram heitt. 

Ps: oft er nóg að nota bara helming af enskri múffu eða eina brauðsneið.

Njótið vel  !