Fara í efni

Kínóasalat gegn flensu

Í dag langar mig að deila með þér salati gegn flensu, enda stútfullt af vítamínum, steinefnum, trefjum, góðri fitu og próteini og alveg ótrúlega einfalt og virkilega bragðgott! Í síðustu viku sagði ég þér frá kosti þess að nota myntu og hvernig hún getur bætt meltingu og stutt við hreinsun líkamans.
Kínóasalat gegn flensu

Í dag langar mig að deila með þér salati gegn flensu, enda stútfullt af vítamínum, steinefnum, trefjum, góðri fitu og próteini og alveg ótrúlega einfalt og virkilega bragðgott!

Í síðustu viku sagði ég þér frá kosti þess að nota myntu og hvernig hún getur bætt meltingu og stutt við hreinsun líkamans.

Prótein spilar mikilvægu hlutverki í að flýta bata og fyrirbyggja gegn flensu. Í salati vikunnar samsetjum við myntuna með kínóa sem er próteinríkasta og auðmeltanlegast af korni. Í raun er Kínóa fræ sem hægt er að nota í stað hýðishrísgrjóna eða byggs sem dæmi.

Einnig finnurðu graskersfræ í salatinu en þau eru m.a rík af zinki sem hjálpar blóðfrumum að berjast gegn sjúkdómum og flensu. Einnig þegar flensa á sér stað getum við fundið fyrir uppþemdu og bólgum og því notum við eplaedik sem mætti líkja við “flensu sprautu” þar sem edikið virkar sem örverudrepandi og dregur úr kvefbólgu í nefi.

 IMG_0535

Ónæmisbyggjandi kínóasalat gegn flensu

~ Fyrir 3-4

1 bolli kínóa (skolað og hreinsað)

2 pressaðir hvítlauksgeirar

1/2 bolli saxaður vorlaukur

1 kassi af kirsuberjatómötum (skornir í fernt)

1/2 eða meira agúrka (skornir í litla bita)

2 msk söxuð ferskt mynta

2 msk steinselja eða basil

Handfylli af klettasalati

2 gulrætur skrældar (einnig má skipta út fyrir elduðu rótargrænmeti)

1 pakki af söxuðum radísum

1/2 bolli af graskersfræjum (einnig má nota sesamfræ og sólblómafræ)

4 tsk eplaedik (eða sítrónusafi ef ekki er höndlað eplaedik)

6-8 tsk kaldpressuð olífuolía

klípa af sjávarsalti

1/4 tsk af pipar

Settu 2 bolla af vatni í pott og fáðu suðuna upp, bættu síðan við kínóanu og lækkaðu aðeins undir. Leyfðu því að malla í 15-20 mín þangað til vatnið er allt gufað upp og kínóað er tilbúið. Settu það yfir í skál og leyfðu því að kólna eða settu það í ísskápinn til þess að flýta fyrir.

Á meðan kínóað er að sjóða settu hvítlaukinn, sítrónusafan, olíuna, salt og pipar saman í skál og leyfðu því að liggja meðan þú skerð grænmetið niður.

Blandaðu síðan öllu saman í 1 skál og settu inn í ísskáp í amk 30 mín til þess að leyfa dressingunni að blandast vel við restina.

Salatið geymist í ísskápnum í allt að 3-4 daga í lokuðu íláti og tilvalið að grípa til sem hádegisverð.

Heilsa og hamingja

Júlía heilsumarkþjálfi

p.s Eins og þú veist skiptir heildarmataræði miklu máli í að byggja upp ónæmiskerfi og efla góða heilsu og orku

Farðu því hér til að skrá þig og læra einföld ráð að hreinsa líkaman strax í dag og styðja við betri heilsu og orku og fá í framhaldi hreinsunarpróf og 1 dags hreinsandi matseðil frá mér.