Fara í efni

Höfnunin - Guðni og hugleiðing dagsins

Höfnunin - Guðni og hugleiðing dagsins

Höfnun

Höfnun er allt viðnám gagnvart augnablikinu – gagnvart þér, öðrum einstaklingum og aðstæðum í lífinu.

Höfnun er að vilja ekki vera eins og þú ert, núna. Að vilja ekki að aðrir séu eins og þeir eru, núna.

Upplifun höfnunar er alltaf persónuleg – en sjálf höfnunin er það aldrei.

Höfnunin er viðnámið sem við upplifum, allur skorturinn sem hægt er að ímynda sér; að lifa eftir því að glasið sé hálftómt eða hálffullt en skilja ekki að það flæðir alltaf upp úr glasinu.

Höfnun er alltaf afneitun á ást og velsæld.