Fara í efni

Falafel vefja frá Mæðgunum

Falafel er í alveg sérstöku uppáhaldi hjá okkur mæðgum. Gott falafel sameinar svo listilega "juicy" máltíð og góða næringu.
Falafel vefja frá Mæðgunum

Falafel er í alveg sérstöku uppáhaldi hjá okkur mæðgum. Gott falafel sameinar svo listilega "juicy" máltíð og góða næringu.

Heimalagaðar falafelbollur eru einfaldar í framkvæmd og aðeins hollari en skyndibitaútgáfan, ef við veljum að baka bollurnar í ofni frekar en að djúpsteikja þær.

Í bókinni okkar Himneskt - að njóta er góð uppskrift af klassískum ofnbökuðum falafelbollum, sem við útbúum reglulega. En þar sem við erum forfallnir falafel aðdáendur langaði okkur í þetta sinn að prófa smá twist, til tilbreytingar. Sú eldri fékk þá snilldarhugmynd að nota fínt rifinn kúrbít í deigið, hann gefur bollunum raka og mýkt, og eykur grænmetisskammtinn í leiðinni. Og til að halda áfram í grænmetinu þá útbjuggum við vefjur úr stórum salatblöðum, fylltum þær af gómsætum bollum, dásamlegri avókadódressingu og heimalöguðu kimchi. Mmm... þvílík sæla! 

Framkvæmdin

Gott er að byrja á því að útbúa kimchi, og láta það standa svolítið (æðislegt ef þið eruð fyrirhyggjusöm og látið bíða yfir nótt, en má líka nota strax). Útbúið síðan bollurnar og á meðan þær eru í ofninum er tími til að skella í avókadódressingu og steikja smá grænkál til að hafa með, eða skera niður það grænmeti sem ykkur langar í.

 

Þegar allt er tilbúið er mál að útbúa vefjurnar. Mikilvægt er að finna salatblöð sem eru nógu stór til að halda öllu góðgætinu inni. Í matvörubúðunum fæst oft íslenskt salat í potti, sem hefur mjög stór blöð, en það má nota hvaða stóru salatblöð sem er, hvítkál er líka mjög gott. Okkur finnst salatblöð frábær sem ferskar vefjur, en þið getið að sjálfsögðu notað þær vefjur sem ykkur þykja bestar, t.d. speltvefjur eða tortillur. 

Fyrir eina vefju: Leggið 2 stór salatlauf á bökunarpappír, setjið grænkál þar ofan á, síðan kimchi ofan á grænkálið, raðið falafelbollunum þar ofan á og setjið að lokum avókadósósuna yfir bollurnar og rúllið upp. 

 

Uppskriftin

Falafelbollur

2 bollar soðnar kjúklingabaunir
2 bollar ferskur kóríander
1 bolli smátt rifinn kúrbítur, safinn kreistur úr honum
1 rauðlaukur, smátt saxaður
4 msk möndlusmjör
2 msk sítrónusafi
1 msk sítrónuhýði
2 hvítlauksrif eða 1 msk þurrkaður hvítlaukur (krydd)
1 tsk chili
1 tsk cuminduft
1 tsk malaður kóríander
1 tsk sjávarsalt
 


Aðferð

  1. Rífið kúrbítinn, stráið yfir hann 1/2 tsk af sjávarsalti og látið hann standa á meðan þið finnið til restina af uppskriftinni.
  2. Setjið allt nema kúrbítinn í matvinnsluvél, en bíðið með að mauka.
  3. Kreistið vökvann úr kúrbítnum (Okkur finnst gott að setja hann í spírupoka og kreista).
  4. Bætið kúrbítnum út í matvinnsluvélina. Blandið þar til þetta er orðið að grófu deigi.
  5. Gott að nota ískúluskeið til að búa til litlar bollur. Gott að rúlla hverja bollu smá stund í lófanum áður en þær eru settar á bökunarpappír svo þær haldi forminu sem best og detti síður í sundur.
  6. Bakið við 200°C í um 20-25 mín. Snúið bollunum eftir ca 10 - 12 mín. 


Avókadósósa

1 avókadó
1 væn msk tahini
2-3 msk sítrónusafi
1/4 tsk salt
1/2 tsk hvítlauksduft
1 msk ferskur kóríander
1/2 daðla (ef vill)
 
Allt sett í blandara og maukað.


Kimchi 

100g hvítkál
2 gulrætur
1 rauð paprika
lögur:
1 tsk sjávarsaltflögur
1 msk eplaedik
1 msk sítrónusafi
1 tsk engiferskot (pressaður engifersafi)
1/4 tsk cayenne (endilega setjið meira ef þið eruð hrifin af sterku)
 


Aðferð

  1. Skerið/rífið hvítkálið í frekar fínar lengjur
  2. Skerið/rífið gulræturnar í mjóar strimla
  3. Steinhreinsið paprikuna og skerið í þunnar sneiðar.
  4. Setjið í skál og stráið yfir salti, ediki, sítrónusafa, engifer og cayenne og kreistið/nuddið saman í smá stund.
  5. Látið standa við stofuhita í 2-4 klst ef þið hafið tækifæri til.
  6. Má nota strax og má líka standa yfir nótt (extra gott ef fær að standa yfir nótt).

Njótið!