Fara í efni

Rauðrófu flögur með guacamole – lausar við Glúten

Að taka allt í einu glúten úr mataræðinu getur verið erfitt, sérstaklega í byrjun. (Trúið mér.. ég man hvernig þetta var hjá mér).
Mmmm...hverjum langar ekki í svona hollustu
Mmmm...hverjum langar ekki í svona hollustu

Að taka allt í einu glúten úr mataræðinu getur verið erfitt, sérstaklega í byrjun. (Trúið mér… ég man hvernig þetta var hjá mér).

En í dag er vefurinn stútfullur af dásamlegum glútenlausum uppskriftum svo þetta er ekkert mál.

 

Hér eru tildæmis tvær geggjaðar uppskriftir af partí nasli án glútens.

Bakaðar rauðrófu flögur

 

Hráefni:

2 meðalstórar rauðrófur

Extra virgin ólífuolía

Balsamic vinegar

Leiðbeiningar:

Forhitið ofninn í 200 gráður. Á meðan ofninn er að hitna skaltu bera á bökunarplötu þunnt lag af extra virgin ólífuolíu.

Nú skerðu rauðrófurnar í mjög þunnar sneiðar, getur notað ostaskerann t.d Raðaðu svo þunnu sneiðunum á plötuna. Alls ekki setja þær ofan á hvor aðra.

Best er að vera í gúmmíhönskum á meðan þú ert að meðhöndla rauðrófurnar því annars verða fingurnir rauðir.

Nú skal baka flögurnar í 20 mínútur, snúa þeim við eftir 10 mínútur.

Settu nú létt yfir balsamic vinegar. Það verður að fara á flögur á meðan þær eru sjóðheitar.

Hafið í huga að þessar flögur minnka í baksti svo reynið að hafa sneiðarnar sem stærstar.

Þær má svo geyma í pappírspoka ef það klárast ekki allur skammturinn.

Chunky Guacamole

Hráefni:

1 eða 2 þroskuð avókadó

1 hvítlauksgeiri – fínt saxaður

1 bolli af niðurskornum tómötum

1 lime

Graslaukur og kóríander eftir smekk

Leiðbeiningar:

Skerðu avókadó í bita og settu í skál. Því næst skal blanda saman hvítlauk, tómötum, graslauk og kóríander. Passaðu upp á að stappa ekki avókadóið því það á að vera chunky, heldur er betra að hræra varlega saman. Setjið núna yfir safann úr lime yfir ídýfuna og blandið honum saman við. Núna skal bera þetta fram með flögunum og dýfa í.

Það er líka rosalega gott að skera niður gulrætur, gúrku, papriku og fleira og dýfa í þetta guacamole.

Njótið vel!