Fara í efni

Mandarínu chilli sulta

Ein lauflétt fyrir mandarínuafgangana.
Mandarínu chilli sulta
Mandarínu chilli sulta

Þessi er alveg æðisleg og varð til fyrir algjöra tilviljun eins og svo margt annað í eldhúsinu hjá mér. 

Innhaldsefni: 

1 stk chilli (fræhreinsa nema þú viljir hana alveg rótsterka)
1 stk paprika (hreinsa fræ og fjarlægja stöngul) 
3 mandarínur
þumlungur engifer (hreinsað)
3 hvítlauksgeirar
1 tsk salt
1 1/2 bolli borðedik
1 bolli hrásykur

Aðferð: 
Allt sett saman í pott og soðið á vægum hita í 40 mín. Sett í matvinnsluvél og maukað. Afraksturinn er settur í krukku, helst meðan allt er sjóðandi heitt því þá innsiglar krukkan sig og geymslutíminn verður mun lengri. 
 
Njótið vel!!