Fara í efni

Hollur súkkulaði avókadó ís

Hér er uppskrift af dásamlegum og bráðhollum súkkulaði og avókadó ís. Tilvalinn í eftirrétt eða bara til að gefa krökkunum ef hlýtt er í veðri.
Hollur súkkulaði avókadó ís

Hér er uppskrift af dásamlegum og bráðhollum súkkulaði og avókadó ís.

Tilvalinn í eftirréttinn eða bara til að gefa krökkunum ef hlýtt er í veðri.

Uppskrift er fyrir tvo.

Hráefni:

1 frosinn banani

1 avókadó, tekið úr hýði og fryst – sjá neðar

2 msk af hrá kakó eða cocoa dufti

2 msk af hreinu maple sýrópi

Má sleppa: myntu extract, kókóshnetuflögur, súkkulaðibitar, hnetusmjör …

Leiðbeiningar:

Setjið öll hráefni í matarvinnsluvél og látið blandast mjög vel saman eða þar til hráefnin eru orðin svipuð og ís. Það þarf að skafa niður af hliðum skálar öðru hvoru.

Ef þú ætlar að bæta við fleiri háefnum þá skal gera það núna og láta hrærast saman við ísinn.

Það tekur um 2-5 mínútur að ná góðri áferð á ísinn.

Ps: varðandi avókadó þá skal taka úr hýði og setja í zip lock poka eða loftæmt box og frysta í um 4 klukkutíma.

Njótið vel!