Nú er hlaupasumarið hafið og margir að leggja línur við skiplag æfinga og keppnishlaupa hvort sem það er á götu eða utanvegar.
Margir fara einnig í hlaup erlendis í stærri sem smærri hópum og er það frábær leið til að ferðast, skoða sig um í heiminum og upplifa menningu og náttúrufegurð annarra landa en jafnframt að hreyfa sig og stuðla að betri heilsu til framtíðar.
Helstu leiðir til að afla sér upplýsinga um hlaupaviðburði á Íslandi eru eftirfarandi þrír miðlar
www.netskraning.is þar sem einnig er hægt er að panta þjónustu við skráningu og tímatöku
www.hlaup.is hinn gamalgróni og sígildi vefur Torfa H. Leifssonar þar sem finna má efni um allt milli himins og jarðar er snýr að hlaupum. Vefurinn hefur verið starfandi síðan 13. ágúst 1996 og heldur því upp á 30 ára starfsemi í ágúst nk. Hlaupahaldarar geta pantað auglýsingu um hlaup og þjónustu við skráningu í hlaup hjá Hlaup.is.
www.hlaupadagskra.is nýjasti vefurinn þar sem haldið er utan um dagskránna árið um kring. Fín viðbót við annars góðar síður hjá Netskráningu og Hlaup.is
Þá er að byrja að skipuleggja sig og skrá í hlaup, en gott er að vera vel vakandi yfir skráningarfrestum og hækkun á gjaldi í hlaup, auk þess sem af og til eru hlaup með fjöldatakmörkunum.
Fríða Rún Þórðardóttir