KSM-66 Ashwagandha
Hvað er KSM-66 ashwagandha?
KSM-66® er staðlaður útdráttur úr ashwagandha-rót (Withania somnifera) með að minnsta kosti 5% withanolides. Það er það form ashwagandha sem flestar klínískar rannsóknir hafa verið gerðar á.
Hvað er í KSM-66 Ashwagandha frá Ingling?
400 mg af KSM-66® ashwagandha-útdrætti í hverju hylki. Hylkið er úr jurtabeðmi (HPMC). Inniheldur mjólk. 90 hylki, 90 daga skammtur.
Þrautrannsakaðasta form Ashwagandha
Fyrir hverja?
Hvernig á að taka ashwagandha?
1 hylki á dag með máltíð. Fyrir svefn tekur fólk gjarnan hylkið að kvöldi, fyrir streitu og einbeitingu að morgni. Áhrifin byggjast upp við reglulega notkun; rannsóknir miða við 8–12 vikna samfellda inntöku.
Við hverju hjálpar ashwagandha?
Rannsóknir á KSM-66® benda til þess að það geti stutt við streituþol, lækkað kortisól, bætt svefn og stutt við andlegt og líkamlegt jafnvægi. Það er adaptógen – jurt sem hjálpar líkamanum að laga sig að álagi.
Hækkar ashwagandha testósterón?
Ekki beint. Það lækkar kortisól, sem vinnur gegn testósteróni, og rannsóknir á körlum undir álagi hafa mælt hækkun samhliða. Fyrir beinan stuðning við testósterón er Kraftur samsettur sérstaklega.
Er KSM-66 Ashwagandha vegan?
Þessi útgáfa inniheldur mjólk. KSM-66 VEGAN er til í sérstakri útgáfu án mjólkur.
Má taka ashwagandha með Krafti eða Gyðju?
Kraftur og Gyðja innihalda nú þegar KSM-66® ashwagandha (250 mg og 200 mg), svo yfirleitt er ekki þörf á að bæta við. Djúpur svefn inniheldur 80 mg.
Hverjir ættu ekki að taka ashwagandha?
Ráðfærið ykkur við lækni ef þið:
- Eruð þunguð eða með barn á brjósti.
- Takið lyf eða glímið við undirliggjandi sjúkdóm.
- Eruð með sjálfsofnæmissjúkdóm eða skjalkirtilssjúkdóm.
- Eruð með undirliggjandi sjúkdóm(a).
- Eruð með ofnæmi fyrir einhverjum innihaldsefna vörunnar.
Ráðlagður dagskammtur: 1 hylki
Áhrifin byggjast upp við reglulega notkun; flestar rannsóknir miða við átta til tólf vikna samfellda inntöku.
Hvar er KSM-66 Ashwagandha framleitt?
Í framleiðslu Ingling í Mosfellsbæ.
