Fara í efni

KSM-66 Ashwagandha

Þrautrannsakaðasta form Ashwagandha, íslensk framleiðsla.
Þrautrannsakaðasta form Ashwagandha
Þrautrannsakaðasta form Ashwagandha

Hvað er KSM-66 ashwagandha?

KSM-66® er staðlaður útdráttur úr ashwagandha-rót (Withania somnifera) með að minnsta kosti 5% withanolides. Það er það form ashwagandha sem flestar klínískar rannsóknir hafa verið gerðar á. 

Hvað er í KSM-66 Ashwagandha frá Ingling?

400 mg af KSM-66® ashwagandha-útdrætti í hverju hylki. Hylkið er úr jurtabeðmi (HPMC). Inniheldur mjólk. 90 hylki, 90 daga skammtur.

Þrautrannsakaðasta form Ashwagandha

  • Streituþol og ró
  • Betri svefn
  • Orka og skerpa
  • KSM-66® staðlað extrakt staðlað í minnst 5% withanolíð.

Fyrir hverja?

• Þá sem búa við mikið álag og vilja styðja við ró og jafnvægi
• Þá sem vilja minnka kortisól (streituhormónið)
• Þá sem vilja sofa betur og hugsa skýrar

Hvernig á að taka ashwagandha?

1 hylki á dag með máltíð. Fyrir svefn tekur fólk gjarnan hylkið að kvöldi, fyrir streitu og einbeitingu að morgni. Áhrifin byggjast upp við reglulega notkun; rannsóknir miða við 8–12 vikna samfellda inntöku.

Við hverju hjálpar ashwagandha?

Rannsóknir á KSM-66® benda til þess að það geti stutt við streituþol, lækkað kortisól, bætt svefn og stutt við andlegt og líkamlegt jafnvægi. Það er adaptógen – jurt sem hjálpar líkamanum að laga sig að álagi.

Hækkar ashwagandha testósterón?

Ekki beint. Það lækkar kortisól, sem vinnur gegn testósteróni, og rannsóknir á körlum undir álagi hafa mælt hækkun samhliða. Fyrir beinan stuðning við testósterón er Kraftur samsettur sérstaklega.

Er KSM-66 Ashwagandha vegan?

Þessi útgáfa inniheldur mjólk. KSM-66 VEGAN er til í sérstakri útgáfu án mjólkur.

Má taka ashwagandha með Krafti eða Gyðju?

Kraftur og Gyðja innihalda nú þegar KSM-66® ashwagandha (250 mg og 200 mg), svo yfirleitt er ekki þörf á að bæta við. Djúpur svefn inniheldur 80 mg.

Hverjir ættu ekki að taka ashwagandha?

Ráðfærið ykkur við lækni ef þið:

  • Eruð þunguð eða með barn á brjósti.
  • Takið lyf eða glímið við undirliggjandi sjúkdóm.
  • Eruð með sjálfsofnæmissjúkdóm eða skjalkirtilssjúkdóm.
  • Eruð með undirliggjandi sjúkdóm(a).
  • Eruð með ofnæmi fyrir einhverjum innihaldsefna vörunnar.

Ráðlagður dagskammtur: 1 hylki

Áhrifin byggjast upp við reglulega notkun; flestar rannsóknir miða við átta til tólf vikna samfellda inntöku.

Virk innihaldsefni: KSM-66® Ashwagandha extrakt 400 mg í hylki

Önnur innihaldsefni: Hylki úr jurtabeðmi (HPMC)

Pakkning: 90 hylki • 90 daga skammtur • Nettóþyngd 100 g

Ofnæmisvaldar: Inniheldur MJÓLK.

Leiðbeiningar um notkun og geymslu

Fylgið ráðlögðum dagskammti. Ekki skal fara yfir ráðlagðan dagskammt. Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreyttrar og hollrar fæðu eða heilbrigðs lífsstíls. Geymið á köldum og þurrum stað, fjarri beinu sólarljósi. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Hvar er KSM-66 Ashwagandha framleitt?

Í framleiðslu Ingling í Mosfellsbæ.