Fara í efni

Krækiberjabomba fyrir meiri orku og hreinsun

Krækiberjabomba fyrir meiri orku og hreinsun

Við vitum öll að bolluát og saltkjöt og baunir er ekki það besta fyrir líkamann…

Í dag deili ég með þér helstu fæðunni fyrir meiri orku og minni bjúg! Þar að auki færð þú uppskrift af algjörri orkusprengju með íslenskum krækiberjum! Það gerist varla betra…

Grænt salat eins og grænkál, klettasalat, spínat eða lambhagasalat er ein helsta fæðan sem hjálpar til við að hreinsa og minnka bjúg, styrkja þarmaflóruna, bæta orku líkamans, byggja upp ónæmiskerfið, minnka kviðfitu og draga fram náttúrulegan ljóma!

Grænt salat hjálpar einnig til við að slá á sykurlöngun vegna beiska bragðsins sem kemur frá þeim, svo er það líka rosalega steinefnaríkt, ríkt af trefjum og próteini!

Það er auki innihalda grænu laufblöðin kalsíum, magnesíum, járni, fosfati, kalíum, zinki og A,C,E og K vítamínum.

Það að blanda grænu salati í blandara auðveldar líkamanum upptöku næringarefna.
 

shutterstock_300104726

Krækiberjabomba fyrir meiri orku og hreinsun

2 góð handfylli af blaðgrænu (spínat/lambhagasalat)

1 bolli möndlumjólk  (uppskrift neðar eða notið aðkeypta)

1 banani

2 msk chia fræ lögð í bleyti

Græn duft (t.d blanda frá Kiki sem fæst á Gló)

1/2 bolli íslensk krækiber, frosin

1/4 bolli (eða meira) hindber, frosin

1 tsk kókosolía brædd

Möndlumjólk

50 gr möndlur

4 bollar Vatn

himalaya salt á hnífsodd eða/og 2-3 steviu dropa frá via health steviu
 

  1. Útbúið möndlumjólk með því að setja möndlur og vatn í blandara og hræra þar til kekkjalaust. Smakkið og bætið við salti eða/og steviu dropum. Hægt er að drekka möndlumjólkina beint úr blandaranum eða setja í hana gegnum grisjupoka til að fá hana tæra. Skiljið c.a. 1 bolla af möndlumjólkinni eftir í blandarakönnunni og geymið rest í kæli. Möndlumjólk geymist fersk í 3-5 daga. 
  2. Bætið næst öllum innihaldsefnum nema kókosolíu við í blandarakönnuna og hrærið. Rétt undir lokin má bæta við kókosolíunni og hræra örlítið en kókosolían harðnar hratt ef hún er sett saman með frosnum berjum.
     

Að bæta við meira af grænu er lykilatriðið að aukinni orku, minni verkjum og til að komast í form á fljótlegan en náttúrulegan hátt. Enda er þetta eitt af fyrstu skrefunum í Nýtt líf og Ný áður en hópurinn byrjar svo á þriggja vikna matarhreinsun.

Hreinsun á ekki að vera kvöl og pína, hef ég fundið það út að hreinsun skilar áhrifaríkasta árangrinum þegar hún er tekin með mat eins og í þriggja vikna matarhreinsun Nýtt líf og Ný þú þjálfunar.

Hér  má svo sækja leiðarvísi með fleiri girnilegum og grænum uppskriftum, fróðleik og stuttu hreinsunarprófi svo þú sjáir betur hvar líkami þinn og heilsa eru stödd. Með skráningu lærir þú einnig um skrefin sem við tökum í Nýtt líf og Ný þú þjálfun og hverskonar árangri má búast við.

Ef þú hefur íhugað hvernig það væri að breyta um lífsstíl og ert orðin leið á að enda alltaf í sama farinu… Ef þú þráir að öðlast varanlegt þyngdartap, orku og allsherjar heilsu! Er þetta tíminn þinn! (næsta þjálfun verður ekki haldin fyrren 2018)

Ég skapaði Nýtt líf og Ný þú þjálfun til þess að sýna þér leiðina VARANLEGUM árangri, leiðina sem hentar ÞÉR.

Þér er ætlað að lifa full af orku, laus við leiðindakílóin sem þvælst hafa fyrir þér, frjáls til að fara upp fjöll og firnindi án þess að verkja í skrokkinn —- lífsglöð og sátt!

Byrjaðu því að borða meira af grænu með einfalda leiðarvísinum hér og lærðu á sama tíma meira um hvernig Nýtt líf og Ný þú lífsstílsþjálfun gæti breytt lífi þínu!

Heilsa og hamingja,
jmsignature