Fara í efni

6 ástæður af hverju konur þurfa meiri svefn

Ég verð bara að segja þér nokkuð, Þetta er eitthvað sem ég trúi að muni breyta hugmyndum þínum um svefn og einmitt það sem gerði mér loksins kleyft að skilja af hverju maðurinn minn gat sofið í 4 tíma og verið frískur allan daginn en ekki ég!
6 ástæður af hverju konur þurfa meiri svefn

Síðan ég man eftir mér hef ég þurft á miklum svefni að halda, sem lítil stúlka spurði ég móður mína hvort ég mætti heldur fara að sofa en að vaka frameftir.

Þegar ég fór loksins að skilja hvernig svefn virkar öðruvísi fyrir okkur konur en karla, sagði ég skilið við baráttuna við verkjaraklukkuna og leyfði mér heldur að sofa út.

Þegar ég fór að skoða svefn betur komst ég að því að hann spilar stærra hlutverki  fyrir heilsuna og sérstaklega hjá okkur konum en ég gerði mér grein fyrir.

En rannsóknir sýna að heili okkar kvenna er “flóknari" og þarfnast því meiri svefns.

Þetta veltur allt á uppteknum “multi tasking” heila kvenna.

Því virkari sem heilastarfsemin er yfir daginn, því meira þarf heilinn að jafna sig eftirá og því meiri svefn þarft þú á að halda. Konur eiga það til að vera með mörg verkefni á höndum sér, taka ákvarðanir og gera margt í einu, þær þurfa því oft á meiri svefni að halda. Karlmenn sem eru í flóknum störfum sem þurfa að taka mikið af ákvörðunum og leysa mörg verkefni gætu einnig þurft á meiri svefni að halda en meðalmaðurinn, segir Prófessor Jim Horne.

Þannig að í raun veltur þetta á að heili kvenna sé uppteknari og þurfi meiri tíma til þess að slaka á og jafna sig á næturnar, bætir Jim Horne við.

Samkvæmt annarri rannsókn, kemur fram að konur ættu að fá að sofa lengur, þar sem þær þjáðust mun verr heilsufarslega vegna of lítils svefns en menn.

Bætt geðheilsa

Við konur getum verið sérlega viðkvæmar andlega þegar við sofum verr og eru sterk tengsl milli lélegs svefns og andlegrar vanlíðan, þunglyndi og jafnvel reiði, þessar niðurstöður sýndu ekki eins sterk tengsl hjá körlum. 

“Svefn getur því minnkað stress og stutt við heilbrigðan blóðþrýsting”

Aukin brennsla

Í nýlegri gamanmynd “The Intern”  segir frá að konur sem sofa minna en 7 klst á nóttu eru 38% líklegri til þess að þyngjast en þær sem sofa meira en 7 tíma á nóttu.

Með minna en 5 eða 6klst , gætir þú verið að skapa ójafnvægi í líkamanum með því að hægja á brennslunni þinni. 

Í 7 ára finnskri rannsókn á 7.022 miðaldra einstaklingum kom fram að konur sem voru að upplifa svefnvandamál voru mun líklegri til þess að glíma við ofþyngd (5 kg eða meira)

Þeir sem upplifa skort á svefni upplifa oft líka meiri svengdartilfinningu þar sem svefn og svengd er stjórnað á sama svæði í heilanum.

Bætt minni og betri afköst

Fólk sem sefur of lítið afkastar minna í vinnu. Á meðan þú sefur getur þú bætt minnið þitt og færni sem þú lærir á meðan þú ert vakandi.  

Minni bólgur

Miklar bólgur í líkamanum hafa verið tengdar við hjartasjúkdóma, heilblóðfall, liðagigt og öldrun fyrir aldur fram. Rannsóknir benda til að þeir sem sofa of lítið, eru með meira af bólgum í líkamanum en þeir sem sofa meira en 6 tíma á nóttu.

Önnur rannsókn sýndi að þeir sem sváfu færri en 6 tíma á dag voru með meira af svokölluðu “C-reactive” próteini, sem tengist hærri áhættu á hjartaáföllum.

 Lengra líf

Þó svo að öldrun á óhjákvæmileg fyrir okkur öll, getum við hægt á ferlinu með því að sofa nægilega lengi á hverri nóttu, og stutt þannig við vellíðan, heilsu og lengra líf.

Með öðrum orðum ætti að vera góð húsregla að leyfa húsfreyjunni að sofa út, hún verður glaðari og hraustari fyrir vikið.

 Vakti greinin áhuga þinn?

Ef svo er máttu deila með vinum þínum á facebook og sérstaklega ef þú átt vinkonu sem sefur lítið eða talar oft um hvað hún þarf að sofa mikið. Ekki leyfa þeim að fara á mis við heilsu sína eins og ég þurfti að upplifa.

heilsa og hamingja,

Júlía heilsumarkþjálfi