Hafnarfjarðarhlaupið 12. júní

Hafnarfjarðarhlaupið verður haldið í þriðja sinn fimmtudaginn 12. júní kl. 20:00. Hlaupin verður frábær leið frá miðbænum um íbúða- og atvinnusvæði hafnarinnar en Hafnarfjarðarhöfn og Eimskip opna sérstaklega tollsvæði sitt til að skapa möguleika á einni hröðustu götuhlaupabraut landsins!
Hlaupið er haldið af Frjálsíþróttadeild FH í samvinnu við Hafnarfjarðarbæ, Fjarðarkaup, Nike og fleiri styrktaraðila þannig að það er til mikils að vinna.
Hlaupaleiðin: Boðið er upp á tvær vegalengdir, 5 km og 10 km.
- Hlaupaleiðin er marflöt og býður þar með upp á góðar bætingar
- Hringurinn er 5 km og þátttakendur í 10 km hlaupi hlaupa því tvo hringi
- Hlaupið er vottað af Frjálsíþróttasambandi Íslands og fer árangur í afrekaskrá FRÍ
Leiðarlýsing
Ræst er á Strandgötu við Thorsplan. Hlaupið er eftir Vesturgötu og út fyrir Norðurbakkann. Þar er farið inn á Strandstíginn og Norðurbakkinn hlaupinn til baka. Við strætóskýli á móts við Íþróttahúsið er farið út á Strandgötu og hlaupið út á höfnina við Hafró. Þar er farið inn á lokað svæði Hafnarfjarðarhafnar og áfram að lokuðu athafnasvæði Eimskips. Þaðan er farið að Óseyrarbraut að Fornubúðum og Strandgatan hlaupin til baka. Við Hafnarfjarðarkirkju er beygt af hringtorgi við Lækjargötu og inn Strandgötu að Thorsplani. Hlaupaleiðin er marflöt í kringum höfnina í fallegasta firði landsins. Þarna verða bætingar.
Skráning https://hlaup.is/vidburdir/hafnarfjardarhlaupid-12-06-2025/skraning-hafnarfjardarhlaupid-2025/#/1
Þátttökugjöld eru eftirfarandi:
- 10 km kr. 5.500 en kr. 3.500 fyrir 15 ára og yngri (fædd 2010 og síðar)
- 5 km kr. 4.500 en kr. 2.500 fyrir 15 ára og yngri (fædd 2010 og síðar)
Ekkert aldurstakmark er í hlaupið og allir eru velkomnir, jafnt reyndir hlauparar sem byrjendur.
Afhending gagna
Afhending keppnisnúmera fer fram í Fjarðarkaupum miðvikudaginn 11. júní milli kl. 14 og 18 og fimmtudaginn 12. júní milli kl. 13 og 17.
Verðlaun Vegleg verðlaun verða í báðum vegalengdum og flokkum karla og kvenna.
Nánari upplýsingar: Sigurður P. Sigmundsson, siggip@hlaup.is