Fara í efni

Akureyrarhlaup Mizuno og atNorth 3. júlí

Akureyrarhlaup hefur verið árviss viðburður í Íþróttalífi Akureyringa frá 1992 og notið mikilla vinsælda en þó svo að hlaupið sé keppnishlaup þá er það fyrir alla, unga sem aldna, byrjendur og lengra komna því megin markmiðið er að taka þátt og njóta þess að hreyfa sig.
Akureyrarhlaupið 3. júlí
Akureyrarhlaupið 3. júlí

Akureyrarhlaup hefur verið árviss viðburður í Íþróttalífi Akureyringa frá 1992 og notið mikilla vinsælda en hlaupið er styrkt af Akureyrarbæ og Heilsueflandi samfélagi þar en í ár eru Mizuno og atNorth viðbótar styrktaraðilar hlaupsins sem fer fram að kvöldi 3. júlí.

Þó svo að hlaupið sé keppnishlaup þá er það fyrir alla, unga sem aldna, byrjendur og lengra komna því megin markmiðið er að taka þátt og njóta þess að hreyfa sig og er boðið upp á þrjár vegalengdir 5 km, 10 km og hálfmaraþon. Keppni í hálfmaraþoni er jafnframt Íslandsmeistaramót í greininni. Þar er keppt um Íslandsmeistaratitla í hálfmaraþoni karla og kvenna og einnig um Íslandsmeistara í aldursflokkum.
Rás- og endamark er við menningarhúsið Hof og er hlaupið um eyrina og meðfram ströndinni í átt að flugvellinum svo hlaupaleiðin er marflöt og vænleg til góðra afreka. https://www.ufa.is/is/moya/page/hlaupaleidir-i-akureyrarhlaupi

Skráning fer fram á netskraning.is www.netskraning.is og einnig verður hægt að skrá sig í World Class á keppnisdag milli kl. 17.00 og 18.30.

Dagskrá á hlaupadag

16.00 - 19.00 Afhending keppnisgagna í World Class við Strandgötu.
19.00 Fyrri ræsing í hálfmaraþoni, hlauparar sem reikna með að vera lengur en 1:50:00 klst. að hlaupa
19.30 Seinni ræsing í hálfmaraþoni, hlauparar sem reikna með að vera fljótari en 1:50:00 klst. að hlaupa
20.05 Ræsing í 5 og 10 km hlaupi
20.20 - 22.00 Hlauparar koma í mark. Veitingar í boði á marksvæði. Hægt að fara í sturtu í Word Class
22.00 Tímatöku lýkur
21.30 - 22.00 Verðlaunaafhending í World Class

Tímataka og úrslit
Tímataka.is mun annast tímatöku í hlaupinu og úrslit verða birt á vefnum www.timataka.is strax að loknu hlaupi og síðar á hlaup.is og í afrekaskrá FRÍ.

Verðlaun
Veitt verða verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin í öllum vegalengdum og verðlaunapeningar fyrir aldursflokka. Einnig verður dreginn út fjöldi útdráttarverðlauna þar sem allir eiga sömu möguleika á glaðningi.

Keppt er í eftirfarandi aldursflokkum:
5km: 15 ára og yngri, 16-39 ára, 40-49 ára, 50 ára og eldri
10km: 15 ára og yngri, 16-39 ára, 40-49 ára, 50 ára og eldri
Hálfmaraþon: 18-39 ára, 40-49 ára, 50-59 ára, 60-69 ára, 70-79 ára, 80-89 ára, 90 ára og eldri

Rúsínan í pylsuendanum eru verðlaun fyrir ný brautarmet en Tplús gefur peningaverðlaun kr. 75.000 fyrir ný brautarmet í öllum vegalengdum.

Gildandi brautarmet:

5 km karlar Baldvin Þór Magnússon 14:40 mín
5 km konur Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir 17:54 mín

10 km karlar Kári Steinn Karlsson 30:18 mín
10 km konur Guðlaug Edda Hannesdóttir 34:57 mín

Hálfmaraþon karlar Arnar Pétursson 1:08:22 klst
Hálfmaraþon konur Andrea Kolbeinsdóttir 1:15:59 klst