Fara í efni

Fara teymisvinna og vellíðan saman?

Fara teymisvinna og vellíðan saman?

Embætti landlæknis, VIRK og Vinnueftirlitið gangast fyrir morgunfundi undir yfirskriftinni Fara teymisvinna og vellíðan saman? í Gullteigi á Grand Hótel fimmtudaginn 12. september kl. 8.15-10.00.

Fyrirlesarar verða Dr. Henning Bang prófessor við Oslóarháskóla sem rannsakað hefur teymisvinnu í tuttugu ár en erindi hans ber yfirskriftina What characterizes teamwork that creates great results and makes team members happy? og Valgerður Hrund Skúladóttir stofnandi og framkvæmdastjóri Sensa en erindi hennar ber yfirskriftina Er hægt að kaupa heilann í fólki? Teymisvinna í þekkingarfyrirtækjumSigríður Kristín Hrafnkelsdóttir verkefnisstjóri hjá embætti landlæknis stýrir fundinum.

Morgunfundurinn er liður í fundaröð um heilsueflingu á vinnustöðum og er hluti af samstarfi VIRK, embættis landlæknis og Vinnueftirlitsins um heilsueflingu og forvarnir á vinnustöðum. Markmið samstarfsins er að stuðla að betri heilsu og vellíðan vinnandi fólks á vinnustöðum, fyrirbyggja kulnun og minnka brottfall af vinnumarkaði.

Morgunfundurinn er öllum opinn en skrá skal þátttöku á virk.is – hér.