Fara í efni

Fæðingarsögur

Fæðingarsögur

Svo lengi sem börn hafa fæðst hafa verið sagðar fæðingarsögur. Við segjum fæðingarsögur og við hlustum á þær. Það er mikilvægt að fæðingarsögur séu sagðar. Fæðingar eru í eðli sínu einkamál og í þróuðum samfélögum eiga þær sér yfirleitt stað fyrir lokuðum dyrum, ýmist á sjúkrahúsum, fæðingarstofum eða inni á heimilum. Almenningur hefur alla jafna ekki tækifæri til að verða vitni að þessum merka atburði og því hvað fæðingarferlið er ótrúlega margbreytilegt. Fæðingarsögur eru því nauðsynleg viðbót við annars konar þekkingarmiðlun til að veita innsýn í þennan reynsluheim kvenna. Þessar sögur eru oftar en ekki eftirminnilegar, hlustandinn þekkir jafnvel söguhetjurnar og þá verður sagan enn áhrifaríkari.

Það getur verið snúið að finna sinn farveg í stafrænni veröld þar sem ofgnótt upplýsinga er fyrir hendi. Auðvelt er að finna alls konar frásagnir af fólki um allan heim sem býr við misjafnar aðstæður. Við verðum að taka ábyrgð á því sjálf hvað við veljum að hlusta á og lesa. Verðum sjálf að skammta í okkur réttu sögurnar fyrir okkur og vera meðvituð um hvað er gagnlegt fyrir okkur og hvað ekki. Takið til ykkar það sem höfðar til ykkar. Allar sögur eiga rétt á sér en alltaf þarf að sýna bæði söguhetjum og hlustendum virðingu. Ekki er til neitt rétt eða rangt við fæðingarupplifun, hún er bara upplifun hvers og eins. Flestir geta fundið einhverja jákvæða og lærdómsríka hlið á sinni fæðingu sem gaman er að deila með öðrum. Hlustendur geta setið eftir með lærdóm um auðmýkt gagnvart krafti og getu líkama konunnar til að ala af sér barn, gildi stunðings í fæðingu eða praktísk ráð varðandi stellingar svo eitthvað sé nefnt. Munið svo að einn daginn verður ykkar fæðing líka saga. Einstök saga.

Barnsfæðingar hafa fylgt mannskepnunni alla tíð og verið samofnar menningu okkar og sögu. Konur hafa fætt börn og munu halda áfram að fæða börn. Ykkur finnst þetta eflaust augljósar staðreyndir en samt er gott að hafa þetta hugfast. Núna í augnablikinu eru mörg börn að fæðast. Á heimsvísu fæðast um 258 börn á mínútu, eða 4,3 á sekúndu. Konur upplifa fæðingar á ótal vegu og engar tvær eins. En allar hafa þær sögu að segja. Hlustum á þær. Hvetjið mæður ykkar, ömmur og frænkur til að segja ykkur sínar fæðingarsögur. Sögurnar eru fjársjóður sem okkur ber að varðveita.

Ásta Hlín Ólafsdóttir ljósmóðir
www.bjorkin.is